154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[12:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég hef ekkert við fundarstjórn þína athuga. En vegna þeirra ummæla sem komu fram í ræðu frá hv. þingmanni þá vil ég segja það að ég geri ekki lítið úr umboðsmanni barna eða áliti þeirra. Við tókum það til umfjöllunar og fjölluðum málefnalega um það í nefndinni og fyrir liggur nefndarálit. En mér sem þingmanni er vissulega frjálst að hafa skoðun á því sem þar kann að koma fram. Það sem ég sagði áðan — ég ætla ekki fara niður á það plan að tala um einhverjar gaslýsingar, hvorki ráðuneytisins né annarra.

Hv. þingmaður. Ég skal bera virðingu fyrir skoðunum þínum en við skulum bara fara satt og rétt með. Og þetta hér á ekkert erindi í umræðu um fundarstjórn forseta því að þetta varðar atriði máls og við skulum bara ræða málið sem slíkt.