154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[12:59]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína en ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja í mínu andsvari. Það er vitaskuld leitt að heyra að ræða mín í gær á eldhúsdegi hafi valdið hv. þingmanni slíkri hryggð sem hún hefur hér lýst í löngu máli sínu. Það vekur aftur á móti furðu mína að hv. þingmaður virðist ekki gera sér nokkra grein fyrir því álagi sem sá mikli fjöldi umsækjenda um vernd hér á landi hefur valdið á öll okkar kerfi, svo ekki sé talað um hinn mikla kostnað.

Hér talar hv. þingmaður um að stjórnarflokkarnir séu að viðhafa afmennsku. Því vil ég spyrja hv. þingmann: Er þá afmennska í öllum löndum Evrópu — í öllum löndum Evrópu? Því að það vill þannig til um þessar mundir að öll ríki Evrópu eru að herða útlendingalöggjöf sína í þá átt að fækka umsóknum í álfunni og tryggja brottflutning þeirra sem ekki fá vernd í álfunni, að þeir yfirgefi Schengen-svæðið og Evrópu.

Í ræðu minni í gær talaði ég um að flóttamannastraumurinn væri eins og vatn. Og allir þekkja að vatn rennur í straumi. Hér var ég að tala í myndlíkingu. Ég sagði orðrétt: Flóttamannastraumurinn er eins og vatn sem finnur sér farveg og rennur þangað sem stærstu glufurnar finnast og veikasta regluverkið.

Ég get ekki séð hvernig það er niðrandi tal til fólks eins og hv. þingmaður nefnir. Ég vil spyrja hv. þingmann: Hvernig vill hv. þingmaður hafa þetta fyrirkomulag hér á landi?