útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Ég ætla að byrja á að svara spurningu hæstv. dómsmálaráðherra vegna þess að svarið er einfalt: Já, það er afmennskun í gangi í allri Evrópu. Já, hún er í gangi í öllum heiminum í dag. Afmennskun, jaðarsetning, útskúfun. Við erum, eins og ég nefndi alla vega tvisvar í ræðu minni hérna áðan, að taka skref aftur á bak í þróun mannkynsins sem siðuð skepna, þannig að svarið er já.
Hæstv. ráðherra segir að ég geri mér ekki grein fyrir því álagi sem koma flóttafólks hingað hefur valdið á okkar kerfi. Jú, heldur betur. Og það er algjörlega heimatilbúinn vandi. Peningurinn sem við erum að sóa í þetta kerfi er algerlega að óþörfu. Þetta er fullkomlega heimatilbúinn vandi. Móttaka flóttafólks frá Úkraínu sýndi svart á hvítu að það þarf ekki að breyta neinum lögum til að stytta málsmeðferðartíma niður í fjóra daga að meðaltali, tryggja skilvirkni. Það var sett á fót það sem er kallað á ensku, með leyfi forseta, „one stop shop“, sem er búið að vera að kalla eftir í áratugi. Það var sett á fót og hvað gerist? Fólk gengur inn um einar dyr, er skráð, fer í læknisskoðun, fer í viðtal, sækir dvalarleyfi sitt og getur byrjað að fóta sig í nýju landi, í nýju lífi. Það er þetta sem við eigum að gera. Það þarf engar lagabreytingar til. Það þarf enga styttingu gildistíma dvalarleyfa. Það þarf engar skerðingar á heimildum til fjölskyldusameiningar. Það þarf ekkert að níðast á fólki í gríðarlega viðkvæmri stöðu til þess að tryggja skilvirkni. Og við höfum sýnt það. Við höfum gert það. Það er það sem ég myndi vilja sjá. Ef við myndum gera það værum við ekki að horfa á það hrikalega álag sem við erum að sjá, sérstaklega á tiltekin sveitarfélög. Það er líka ákvörðun stjórnvalda að varpa allri byrðinni á í rauninni fyrst og fremst eitt sveitarfélag. Þau eru kannski fjögur sem eru farin að finna talsverðan þunga en auðvitað þurfti Reykjanesbær (Forseti hringir.) að þola langmestu byrðina og við erum að sjá afleiðingarnar af því. (Forseti hringir.) Afleiðingarnar af því eru ekki síst skert öryggistilfinning fólks í samfélaginu í ofanálag (Forseti hringir.) við aðstæður fólksins sem það hefur ginnt.
(Forseti (ÁsF): Ég bið þingmanninn að virða þann ræðutíma sem henni er úthlutaður.)