útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni hér fyrir þær samræður sem við eigum nú okkar á milli. Hv. þingmaður segir að það sé stórkostleg afmennskun í gangi hjá öllum löndum Evrópu og í öllum löndum heims. Ég tek undir það með hv. þingmanni að þetta er knýjandi viðfangsefni hjá líklega öllum stjórnvöldum núna, sérstaklega í Evrópu en ekki síður í Ameríku. En þegar hv. þingmaður segir hér að þetta frumvarp sé heimskulegt, þá vil ég segja að það er heimskulegt að halda því fram að við hér, ein fámennasta þjóð Evrópu geti tekið hér á móti á fimmta þúsund umsóknum ár eftir ár og ætla á sama tíma að tryggja velferð í landinu. Að halda því fram að við getum það finnst mér vera óraunsæi og heimskulegt.