154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:06]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Ég ætla að bjóða hæstv. ráðherra að fletta upp tölum yfir það hve mörg börn fæðast á Íslandi á ári hverju, yfir það hversu margir Íslendingar flytja aftur heim sem hafa búið erlendis, hve margir Evrópubúar flytja til Íslands á ári hverju, sem mega gera það án þess að spyrja kóng eða prest. Það ráðum við við, en við ráðum ekki við nokkur þúsund flóttamenn. Hver er munurinn? Munurinn er sá að fyrir þann hóp erum við búin að búa til kerfi þar sem við eyðum mánuðum eða árum og milljörðum á milljarða ofan í það að gera þeim lífið leitt, að reyna að koma þeim úr landi. Það er það sem kerfið gengur út á. Hæliskerfið á Íslandi, og reyndar í Evrópu, snýst ekkert um að hjálpa fólki. Það snýst um að gera allt sem í okkar valdi stendur til að reyna að finna út hvert við getum sent fólk og það er þetta sem er að valda kostnaði og álagi á okkar kerfi, ekki það að fólk komi hingað. Það er ekki það sem er að valda álagi.