154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:07]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Ég vil taka það fram í upphafi að ég mun ekki styðja þetta frumvarp vegna ákvæða sem í því er að finna um fjölskyldusameiningu. En eitthvert fyrirkomulag þarf að vera á þessu. Ég kem úr sveitarfélagi sem hv. þingmaður minntist á hér áðan sem hefur þurft að taka á sig verulegar byrðar vegna þessarar stöðu. Þrátt fyrir að sveitarfélagið hafi af fullum vilja undirritað samninga um samræmda móttöku flóttafólks þá hefur ráðuneytið og Vinnumálastofnun þar fyrir utan búsett fólk af erlendum uppruna upp á annað þúsund fyrir utan þennan samning á svæði í Reykjanesbæ sem er félagslega viðkvæmt — við skulum bara segja það, það er félagslega viðkvæmt. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvernig getum við búið til fyrirkomulag sem gerir það að verkum að við séum ekki að leggja svona miklar byrðar á fáa þegar heildin getur í raun og veru tekið á þessu af miklu meiri myndarskap en gert er?