útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ákaflega góða spurningu. Það er nefnilega ekki svo að ég sé mótfallin því að við lærum af þeim ríkjum sem við eigum í góðu samstarfi við. Ég er einmitt á því að við eigum að læra af þeirra reynslu og taka upp það sem hefur reynst vel, t.d. til þess að glíma við þetta ástand sem hv. þingmaður er að lýsa þar sem við erum meðvitað búin að — það er meðvituð ákvörðun stjórnvalda að annars vegar halda fólki í nokkurs konar gíslingu í málsmeðferðartíma sem tekur vikur og mánuði á mánuði ofan og ár og ár þar sem það má ekki vinna, það má ekki sjá fyrir sér sjálft, það hefur ekkert fyrir stafni, það ráfar um bæinn og verður auðvitað ekki vel á sig komið á endanum. Þetta er meðvituð stefna.
Í Noregi t.d. þá er kerfið þannig að ríkið skapar fjárhagslega hvata fyrir sveitarfélög til að taka á móti fólki á flótta. Sveitarfélögin fá ákveðna fjárhæð á mann óháð því hversu mikla þjónustu þarf að veita viðkomandi einstaklingi. Þetta hefur gefið mjög góða raun. Af hverju erum við ekki að herma þetta eftir? Af hverju erum við að herma eftir ríkinu sem hefur gengið einna verst að kljást við þetta allt saman? Reynslan af þessu er sú að sveitarfélög sækjast eftir því að fá til sín fólk. Sveitarfélagið hefur hag af því að styðja fólk til þess að komast á fætur sem allra fyrst og komast inn í samfélagið, verða sjálfbært, af því að þá á sveitarfélagið þarna einhvern aukapening, það þarf ekkert að skila honum til baka. Þarna eru hvatar, við erum með jákvæða hvata. Ástandið sem hefur verið skapað í Reykjanesbæ og er engum í hag er meðvituð ákvörðun. Það er ekki vegna þess að það er svo mikið af flóttafólki. Það er vegna þess að það er svo mikið af umsækjendum þar, fólki sem er í tómarúmi í lífinu, er að bíða eftir öllu og engu og við gerum ekki annað en að senda þeim frekari skilaboð um að þau séu óvelkomin. Á það að bæta ástandið?