útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar svar. Mig langar aðeins að fara í fjölskylduameininguna af því að hér hefur verið minnst á þá umboðsmenn sem við erum að skipa til að hjálpa okkur til að komast að niðurstöðu. Og þegar umboðsmaður Alþingis segir eitthvað þá er það bara gott og gilt, við tökum því sem lögum. En núna er umboðsmaður barna að tjá sig um þetta tiltekna mál og það er eiginlega að mínu mati slegið út af borðinu. Í barnasáttmálanum stendur: „Það sem barni er fyrir bestu“. Ég á erfitt með að skilja það að barn sem er ekki hjá foreldrum sínum, að það sé best fyrir barnið. Ég næ því bara ekki — ef ég hugsa bara um mín börn eða afabörnin mín, ef þau fengju ekki að vera hjá foreldrum sínum. Það stendur:
„Þegar fullorðnir taka ákvarðanir eiga þeir að hugsa um hvaða áhrif þær hafa á börn og eiga að gera það sem er best fyrir þau. Stjórnvöld eiga að tryggja að foreldrar verndi börn sín …“
Gerum við það með því að koma í veg fyrir fjölskyldusameiningar?