útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Það gefur augaleið að það er ekki barninu fyrir bestu að vera aðskilið frá foreldrum sínum. Þetta er einmitt góð ábending hjá hv. þingmanni vegna þess að hvað sem líður einhverri einni og annarri grein í barnasáttmálanum þá gilda allar aðrar greinar um hagsmuni barna og hvernig á að vinna þeirra mál. Það er hins vegar mjög lýsandi sem kom fram í máli ráðuneytisins í kjölfar þessarar umsagnar umboðsmanns barna sem mér finnst segja allt sem segja þarf og segir líka talsvert mikið um þau lög sem voru samþykkt hér í fyrra þegar ráðuneytið segir: „Hagsmunir og réttindi barna eru ekki tromp í útlendingamálum.“
Í fyrra var lögfest á Alþingi ákvæði sem gengur ótvírætt gegn barnasáttmálanum og reyndar öðrum þeim mannréttindaskuldbindingum sem við höfum undirgengist þar sem það var samþykkt að athafnir annarra geti bitnað á hagsmunum barns. Ef foreldri tefur málsmeðferðina verður barnið af réttindum. Þetta var samþykkt hér. Þetta er (Forseti hringir.) brot á réttindum barna. En akkúrat sömu rökin voru notuð þar, að fólk sé ekki að nota börn sem einhver tromp í útlendingamálum. (Forseti hringir.) Þetta er viðhorfið, hvað sem líður öllum lögum og reglum.