útlendingar.
Virðulegur forseti. Það sem ég var einfaldlega að spyrja um var hvort hv. þingmaður telji að þetta frumvarp sem er hér til umræðu, verði það að lögum, brjóti gegn ákvæði barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eða ekki. Ég fékk ekki skýrt svar hvað það varðar. Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst svolítið hjá hv. þingmanni og í nefndarálitinu — það er verið að tala um að þetta fari á skjön við skuldbindingar íslenskra stjórnvalda varðandi barnasáttmálann og það er nákvæmlega það sama og umboðsmaður segir. Jú, breytingarnar taka ekki með fullnægjandi hætti mið af réttindum barna samkvæmt 2., 7., 9. og 10. gr. sáttmálans. Það er ekki verið að segja að það brjóti gegn honum, menn og konur treysta sér ekki til að gera það. En það er svona verið að ýja að því, það er ekki farin öll leiðin. Ég vil bara að fá þetta skýrt: Erum við að brjóta ákvæði barnasáttmálans eða ekki? Ég tel að við séum ekki að gera það. Ég tel að færð séu fín rök fyrir því í nefndaráliti meiri hlutans og það er vitnað hérna t.d. í ákvæði frá Evrópusambandinu um að þetta sé leiðbeiningarregla o.s.frv. Ég tel líka varðandi fjölskyldusameiningar að við hefðum átt að hafa inngildingarkröfu eftir tvö ár (Forseti hringir.) vegna þess að Skandinavía er að reyna að verja velferðarkerfi sín og (Forseti hringir.) reyna að tryggja það að fólk sem er atvinnulaust án húsnæðis (Forseti hringir.) sé ekki að fá stórfjölskylduna heim til sín. Við verðum að tryggja (Forseti hringir.) að það sé virk þátttaka í íslensku samfélagi hjá öllum.