154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:20]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):

Forseti. Stórfjölskylduna heim til sín. Það er ekki svo að fjölskyldusameining nái yfir stórfjölskylduna. Fjölskyldusameining nær ekki einu sinni yfir systkini þín. Systkini þín eru ekki fjölskylda þín. Þannig að ég held að það sé kannski ekki alveg sanngjarnt að tala um það sem einhverja holskeflu af fólki sem kemur í gegnum þetta, fyrir utan það að það hefur verið sýnt fram á að fjölskyldusameiningar flóttafólks eru brotabrot af þeim fjölskyldusameiningum sem eiga sér stað. Eigum við þá ekki líka að fara að meina Íslendingum, íslenskum ríkisborgurum sem eiga maka úti í heimi, að fá maka sína hingað og gera kröfu um hitt og þetta áður en það getur gerst?

Nú hefur hv. þingmaður ekki tækifæri til þess að koma og svara mér hérna aftur en mig langar til að varpa spurningu til hans á móti: Finnst hv. þingmanni í lagi að við séum að samþykkja löggjöf sem er á skjön við barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna? Hann svarar því kannski í ræðu sinni hér á eftir. (EÁ: Já, ég ætla að gera það.)