154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[13:52]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða frumvarp til laga um breytingu á útlendingalögum, alþjóðlega vernd. Við í Flokki fólksins styðjum þetta mál alveg heils hugar og er löngu tímabært að það sé stigið a.m.k. eitthvert skref í áttina að því ná tökum á þessum málum. Í inngangi og greinargerð með frumvarpinu segir:

„Með frumvarpi þessu er brugðist við hraðri þróun í málaflokknum og fordæmalausri fjölgun umsókna um alþjóðlega vernd. Þær breytingar sem lagðar eru til miða m.a. að því að samræma lög um útlendinga við löggjöf í öðrum Evrópuríkjum, þá einkum annars staðar á Norðurlöndum. Þá er einnig stefnt að því að auka skilvirkni innan stjórnsýslunnar og tryggja hagræðingu við nýtingu fjármagns.“

Við vitum það og það hefur ekkert farið á milli mála að kostnaðurinn í þessum málaflokki hefur aukist alveg gífurlega og það hafa verið gerð þar ákveðin mistök í því að senda út þau skilaboð að við séum eiginlega bara opið land, að það sé hreinlega ekkert vandamál að koma til Íslands og fá vernd. Við sjáum það bara best á því hvernig umsóknir frá Venesúela stórjukust. Við verðum og okkur ber skylda til þess að átta okkur á því að við erum lítil þjóð og við getum ekki tekið við öllum. Maður getur svo sem vel skilið að fólk vilji koma hingað og fá vernd og við vitum að það eru stríð og það eru milljónir á flótta og vantar aðstoð. En það er alveg á hreinu að við getum aldrei nokkurn tímann aðstoðað alla þá sem þar eru. Besta aðstoðin er sú að berjast gegn stríði. Ég get ekki ímyndað mér annað en að allt þetta fólk sem er á flótta myndi vilja vera í sínu landi og geta lifað sínu lífi þar. Það er það sem við eigum að reyna að berjast fyrir með öllum ráðum.

En við verðum líka að horfa á innviði hér á landi. Við erum í þeirri ótrúlegu kreppu eins og er í dag. Við erum með heilt samfélag sem þurfti að flýja út af eldgosi. Það veldur ótrúlegu álagi á allt íbúðakerfið okkar. Síðan höfum við verið með þennan ótrúlega fjölda sem hefur verið að sækja um vernd og allt þetta hefur valdið því að ástandið hér á íbúðamarkaði er skelfilegt. Ég verð bara að segja alveg eins og er að það er auðvitað þyngra en tárum taki að þetta ástand má að mörgu leyti heimfæra upp á ábyrgð ríkisstjórnarinnar vegna þess að þetta hefur líka valdið því að þeir verst settu á leigumarkaði hafa aldeilis fengið að kenna því. Maður verður eiginlega orðlaus þegar maður er spurður að því hvernig fólk á að fara að því að taka við tugþúsunda hækkunum á húsaleigu og þegar húsaleigan er komin langt út yfir það sem fólk hefur í framfærslu þá segir það sig sjálft að það gengur bara ekki upp. Einhvern veginn og einhverra hluta vegna er þetta ástand farið að valda því að við erum eiginlega farin að hrekja fólk úr húsnæði yfir í hjólhýsi og húsbíla. Síðan höfum við hér borgina, Reykjavíkurborg, sem horfir á þennan hóp sem einhvern aðskotahlut, liggur við, og sendir fólk bara í einhverja gryfju til þess að reyna að fela ástandið.

Við erum líka hluti af Schengen-svæðinu og það hefur líka verið að valda okkur miklum vandræðum að mörgu leyti. Það er svolítið skrýtið að við erum með frjálst flæði innan Schengen en síðan erum við með rosalega slæmt kerfi fyrir þá sem eru að koma utan Schengen og þeir þurfa svo sannarlega að sanna sig, að þeir séu ekki með eitthvað óhreint í pokahorninu. En einhvern veginn virðist vera mjög auðvelt að fara um innan Schengen-svæðisins, hvort sem það eru afbrotamenn eða bara heilu hóparnir. Við verðum að hugsa um á móti hverjum við erum að taka. Við í Flokki fólksins höfum líka, eins og hefur komið fram, lagt fram breytingartillögu við þetta frumvarp og tókum við þar mið af því sem hæstv. dómsmálaráðherra Guðrún Hafsteinsdóttir sagði hér í eldhúsdagsumræðunum í gær, að okkur bæri engin skylda til að taka við ofbeldismönnum. Við eigum og okkur ber skylda til að sjá til þess að senda þá bara í hvelli til baka sem fremja glæpi og eru tilbúnir til þess að fremja gróft ofbeldi. Við eigum ekki að líða það.

Ég get ekki oft skilið þá hugsun að það sé í lagi að taka við flóttamönnum sem eru einhvern veginn með yfirlýsta stefnu og trúarbrögð þeirra eru þannig uppsett að þeir eru eiginlega bara, hvað má segja, fjandsamlegir gagnvart t.d. konum, jafnvel sínum eigin börnum. Ég meina, ég tel að hver og einn einstaklingur sé bara frjáls að sínum gerðum. En innan þess samfélags sem við tölum um núna, sem við sjáum endurspeglast í máli sem var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness, eru einstaklingar sem eru ekki að koma hingað til að aðlagast íslensku þjóðfélagi. Þeir ætla sér alls ekki á neinn hátt að breyta sínum skoðunum. Þeir ætla ekki á neinn hátt að aðlagast samfélaginu. Þeir vilja bara taka upp þessa ótrúlegu mannvonskusiði sem þeir beita sína eigin fjölskyldu og þar eru aðallega undir konur sem á að bara kúga gjörsamlega af feðraveldinu. Það getur ekki verið þannig og við getum ekki á nokkurn einasta hátt samþykkt þannig hegðun.

Ég hef líka oft spurt mig að því: Hvers vegna eru þessir einstaklingar að sækja hingað norður til Íslands þar sem á að vera frjálst flæði, þar sem einstaklingarnir eiga að vera frjálsir og þar sem fólk á að geta tekið sína eigin ákvörðun, hvort sem það er karl eða kona, og fundið sér maka og haft bara frelsi um það? En einhverra hluta vegna vilja menn koma hingað og annaðhvort vilja þeir ekki fara eða fá bara hreinlega ekki að fara inn hjá þeim þjóðum þar sem þeirra trúarbragðabræður eru og sömu sjónarmið eru uppi. Það hlýtur að vera eitthvað bogið við það að vilja fara til annarrar þjóðar og reyna að þvinga ofbeldisskoðun upp á þá þjóð og fá að halda áfram sínu ofbeldi óáreittir í staðinn fyrir að vilja vera í því umhverfi þar sem þeirra trúarbrögð og þeirra sýn á fjölskyldumál eru virt og farið er eftir þeim.

Við í Flokki fólksins erum með breytingartillögur við frumvarpið og hún hljóðar þannig að á eftir 5. gr. komi ný grein, svohljóðandi:

„Við 42. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Útlendingur nýtur ekki verndar skv. 1. mgr. ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Útlendingur nýtur ekki heldur verndarinnar þegar svo háttar sem um ræðir í F-lið 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.“

Og greinargerðin hljóðar svo:

„Lagt er til að við 42. gr. laga um útlendinga bætist ný málsgrein samhljóða 3. mgr. 45. gr. eldri laga um útlendinga, nr. 96/2002. Í 2. mgr. 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna er að finna sambærilega heimild um að flóttamaður njóti ekki verndar gegn brottvísunum í tilteknum tilvikum. Sambærileg ákvæði er að finna í útlendingalögum nágrannaríkjanna, sbr. 31. gr. dönsku útlendingalaganna. Lagt er til að í stað þess að fjalla um mjög alvarlegt afbrot, líkt og gert var í tíð laga nr. 96/2002, verði vísað til alvarlegs afbrots þar sem ekki tíðkast að vísa til mjög alvarlegra afbrota í íslensku réttarfari.“

Ég tel þetta bara hið besta mál. Við sendum þar af leiðandi skýr skilaboð til þeirra sem eru að íhuga að sækja um vernd á Íslandi um að það sé alveg á hreinu að ef þeir eru hingað komnir til að leita að vernd og fremja svo alvarleg brot þá bara eiga þeir engan rétt á að vera hér.

Við erum með menntakerfi og við höfum tekið við fjölda fólks og það er bara besta mál. Við erum að taka við fjölskyldum og við erum að gera okkar besta til að hjálpa. En við verðum og eigum að læra af reynslu annarra þjóða. Við verðum að sjá að það er á allan hátt betra fyrir okkur að taka við fáum, þeim sem við ráðum við, eins mörgum og við ráðum við, á þann hátt að við getum og sjáum til þess að aðlaga þau að íslensku samfélagi. Að þau fái alla þá aðstoð sem þau þurfa á að halda til að aðlagast íslensku samfélagi. Eitt af því er að læra tungumálið. Einhvern tíma heyrði ég það að ef menn þyrftu hreinlega að borga fyrir — það var talað um 50.000 kall fyrir hvert námskeið í íslensku, sem er auðvitað alveg galið. Auðvitað eigum við að sjá til þess að viðkomandi fái íslenskukennslu sér að kostnaðarlausu. Það á bara að vera hluti af því að við erum að fá erlendan aðila og gefa honum leyfi til að vera hér á landi og við verðum auðvitað að tryggja það að hann skilji og komist sem fyrst inn í íslenskt samfélag og geti þar af leiðandi tjáð sig á okkar máli. Það er auðvitað líka og á að vera okkur víti til varnaðar hvernig ástandið er orðið á mörgum Norðurlöndunum þar sem eru heilu hverfin eingöngu með íbúum, flóttafólki sem hefur fengið vernd. Það hefur orðið slæmt ástand þar sem lög viðkomandi lands virðast einhvern veginn ekki ná að virka. Við eigum að læra af þessu. Við eigum að passa okkur á því að falla ekki í þá pytti sem aðrar þjóðir hafa lent í og sjá til þess að taka a.m.k. þannig á því að við gerum allt sem við getum til þess að fólkið aðlagist samfélaginu, það einangrist ekki í okkar samfélagi.

Ég sé að tíminn er liðinn þannig að ég bið hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.