útlendingar.
Frú forseti. Kostnaður er alltaf að aukast við þennan málaflokk, mjög mikið, og við þingmenn Pírata bendum gjarnan á að þetta sé sóun í kerfinu sem væri hægt að koma í veg fyrir með því einfaldlega að stjórnvöld nálguðust umsóknir um alþjóðlega vernd út frá því að finna rök fyrir já-i eins fljótt og hægt er. Vegna þess að hv. þingmaður nefndi Venesúela sem dæmi þá myndaðist mikill kostnaður í kringum þann hóp umsækjenda eftir að stjórnvöld tóku þá ákvörðun að hætta að greiða þeim leið inn í landið. Fyrir þann tíma var hverfandi kostnaður af fólki sem hingað sótti frá Venesúela vegna þess að þau fengu skjóta og jákvæða afgreiðslu hjá Útlendingastofnun og gátu þá bara farið að taka þátt í samfélaginu. Þegar stjórnvöld ákváðu að skrúfa þarna fyrir þá var staðan sú að fólk sem hafði fengið samþykkt dvalarleyfi og var frá Venesúela var með einna hæstu atvinnuþátttöku allra á Íslandi. Þetta fólk var að leggja til samfélagsins í massavís. Síðan er skrúfað fyrir og þá fer kostnaðurinn að hrannast upp, vegna þess að þá er fólki ekki gert kleift að ala önn fyrir sér sjálft. Þá þarf það að vera í einhverjum úrræðum á vegum hins opinbera, þá þarf að greiða því vasapeninga og allt þetta.
Þarna sjáum við hvernig það þarf ekki einu sinni inn í lagabreytingar til þess að gjörbylta kerfinu. Í þessu tilviki var því breytt til verri vegar. Þarna var lokað fyrir hóp sem stjórnvöld höfðu áður boðið velkominn. Þar með mynduðu stjórnvöld þennan kostnað. Það var ekki fólkið frá Venesúela sem gerði það vegna þess að þau sem komu á undan þeim voru ekki dýr hópur. Það voru stjórnvöld sem ákváðu að gera þetta að hópi sem kostaði mikið að halda föstum í kerfinu.