útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir hans andsvar. Varðandi þann tíma sem Venesúelabúar voru hérna þá verð ég bara að segja eins og er: Jú, það getur hafa verið kostnaður við það að vísa þeim frá. En hvernig hefðum við átt að leysa þann vanda ef við hefðum hleypt þeim öllum inn? Það er húsnæðisvandi. (Gripið fram í.) — Ja, er það lausn? Ég hef heyrt að fólk hafi verið í ósamþykktu húsnæði. Er það lausn að vera í iðnaðarhúsnæði? Er það góð lausn að láta þetta fólk bjargar sér eitt og sér, sjálft, á íslenskum leigumarkaði? Ég segi: Bíddu, þau þurfa nú aldeilis að hafa góða vinnu til þess að standa undir leigu á íslenskum leigumarkaði. Það hlýtur að segja sig sjálft hver kostnaður er gagnvart því. Og hversu mikinn greiða erum við að gera fólki með því að segja: Heyrðu, við bara tökum við og dælum fólkinu inn en við ætlum ekkert að hugsa út í það í hvaða ástand þetta fólk fer á vinnumarkaði, húsnæðismarkaði, heilbrigðismarkaði, í samfélagi sem þau þekkja ekki neitt? Þetta er eins og að henda fólki bara út í tómið og segja: Ókei, jú, þú mátt koma hingað en bjargaðu þér bara. Er það lausn og er það ódýr lausn? (Gripið fram í.) Ég spyr.