útlendingar.
Frú forseti. Maður á kannski ekki að skensa með það en ef fólk fær samþykkt dvalarleyfi þá er það bara sjálft á húsnæðismarkaði og það er ekki kostnaður fyrir ríkið. Þannig að ef við erum að skoða þennan málaflokk einangrað út frá útgjöldum hins opinbera þá er langtum ódýrara að hleypa fólki sem fyrst inn í landið. Það gerir þó ekki lítið úr þeirri stöðu sem hv. þingmaður teiknar upp á húsnæðismarkaði. Hann er hins vegar sjálfstætt vandamál og það þarf ekkert endilega að taka þennan hóp sérstaklega til sem einhvern sökudólg þar. Allir innflytjendur — eða ekki allir innflytjendur — innflytjendur eru mjög stór hluti þeirra sem búa í ósæmandi húsnæði hér á landi. Þá erum við kannski miklu frekar að tala um fólk frá Póllandi eða Litháen eða öðrum löndum innan Evrópska efnahagssvæðisins sem koma til Íslands til að halda hjólum efnahagskerfisins okkar gangandi. Virðingarleysið sem íslenskt samfélag sýnir þeim er að láta þau búa í ósamþykktu húsnæði, illa innréttuðu atvinnuhúsnæði og hvað það er. Það er hins vegar ekki vandamál sem við leysum með því að loka landinu fyrir innflytjendum. Við leysum það með því að byggja almennilegt mannsæmandi húsnæði, ekki bara fyrir innflytjendur heldur líka alla þá hópa sem það vantar.