útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Ég verð að segja að ég er bara innilega ósammála honum að þessu leyti vegna þess að mér finnst ekkert mannúðlegt við það að segja já við fólk, jú, það fái vernd en henda því svo út á guð og gaddinn á Íslandi. Við fólk sem kemur frá Suður-Ameríku og úr allt öðru umhverfi er sagt: Já, heyrðu, þú bara ferð og bjargar þér. Ég segi bara fyrir mig að fólk hlýtur að vera skelfingu lostið að lenda í þeirri aðstöðu sem hér er. Fyrir utan það að þegar fólk lendir á vegg eru veikindi næst á dagskrá og kerfið okkar getur ekki tekið við þeim og þau hafa ekki tungumálið. Ég get ekki séð á nokkurn hátt að það sé einhver góðmennska falin í því. Það er nefnilega allt annar hlutur þegar fólk kemur og er að leita að vinnu, er búið að fá vinnu og búið að redda því húsnæði. Það er bara allt annar hlutur heldur en að henda því á götuna og segja: Bjargaðu þér.