154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er áhugavert sem hv. þingmaður segir því að fólkið er að flýja einhverjar aðstæður. Ef við höfnum þeim — tökum hérna tvo hópa og tölum um réttan hóp. Við erum að tala um hópinn sem samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks á flótta uppfyllir þann samning. Svo er annar hópur sem uppfyllir ekki þann samning. Við erum ekkert að tala um hann, hann á ekki rétt á að fara inn í flóttamannakerfið o.s.frv. Við eigum ekkert að tala um hann, lögin eiga í raun að koma í veg fyrir að sá hópur fái vernd. Við erum bara að tala um hópinn sem uppfyllir samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fólks á flótta. Höfum það á hreinu. Eigum við þá að hafna þeim hópi fólks út af kostnaði af því að þau fara út á guð og gaddinn hérna á Íslandi, eins og hv. þingmaður orðar það, sem þau gera ekki? Ef þau eru í þannig aðstöðu þá eru þau alltaf á vernd hins opinbera, sem er það sem margir óttast að gerist, að þau séu byrði á velferðarkerfinu o.s.frv.

En það var ekki staðan t.d. hjá fólkinu sem var að koma frá Venesúela. Það var komið í vinnu, kannski í ósamþykktu húsnæði og ýmislegt svoleiðis, en það var þeirra val að gera það. Það var það sem þau sættu sig við frekar en aðstæðurnar sem þau voru að koma úr. Af hverju eigum við þá að senda þau og taka þau úr aðstæðunum þar sem þau uppfylla skilyrði þess að vera flóttafólk og senda þau burt í verri aðstæður sem þau voru að koma úr? Ég skil ekki hvernig þetta gengur upp.

Berum þetta saman við málaflokk sem hv. þingmaður þekkir mjög vel, varðandi örorku. Eigum við bara að segja stopp þegar kostnaður er orðinn of mikill vegna þess kerfis? Þetta er nákvæmlega eins. Það er ekki þeim að kenna að við getum ekki leyst vandann.