útlendingar.
Forseti. Hv. þingmaður svaraði í rauninni bara þessari spurningu sjálfur: Hvernig væri einmitt að nota sömu rök á hópinn sem er verið að flytja hreppaflutningum fram og til baka? Það er verið að setja takmörk á það hvað er hægt að hafa mikið af fólki í þjónustu. Er það réttlætanlegt? Nei, ekki samkvæmt réttindum, m.a. vegna samninga sem hv. þingmaður er að berjast fyrir að séu lögfestir. Það er nákvæmlega eins og með aðra alþjóðlegra samninga, t.d. um réttindi fólks á flótta sem voru settir af mjög góðum og gildum ástæðum eftir seinni heimsstyrjöldina. Við vildum ekki upplifa það aftur. Er hægt að setja takmörk á það hversu margir komast á bráðaþjónustuna í Fossvogi? Nei, í rauninni ekki. Það var ekki gert. Málið var leyst.
Mig langar til að spyrja hv. þingmann um breytingartillöguna sem þau eru með. Í lögum er nú þegar t.d. hægt að hafna fólki sem hefur framið alvarleg afbrot eða vegna rökstudds gruns um að það ætli að fremja slík afbrot. Það má sem sagt takmarka vegna frávísunar vegna alvarleika brots o.s.frv. og ef fólk hefur framið alvarleg brot er það þegar í lögum að það má hafna eða brottvísa fólki. Þannig hverju er breytingartillaga Flokks fólksins að bæta við það sem er nú þegar í lögum?