útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég vil bara skerpa á þessu, gera þetta skýrara. (Gripið fram í.) Bara hafa þetta alveg á hreinu. (BLG: Þetta er alveg á hreinu.) Nei, það er það ekki, ekki ef við teljum að það sé það ekki. Við teljum að það þurfi að skerpa á þessu ákvæði og mér finnst það bara alveg sjálfsagt. Ég get ekki skilið að það sé neitt vandamál með það að ef við erum að fá einhverja einstaklinga sem eru að brjóta íslensk lög gróflega og brjóta gróflega á konum og þeirra réttindum, þá finnst mér bara sjálfsagt, eins og ég segi, að setja bara frímerki á rassinn á þeim og burtu með þau. (Gripið fram í.) Það er það sem við eigum að gera. Við erum bara að skerpa á því að það sé alveg á hreinu að við líðum það ekki í okkar þjóðfélagi og samfélagi að það hægt að koma hingað til lands og brjóta á réttindum annarra og vera með hótanir, jafnvel manndráp eins og ef viðkomandi væri staddur í því ríki þar sem hann telur að hann eigi rétt á að fremja svoleiðis glæpi.