154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:22]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þann 22. nóvember 2022 var hv. þingmaður ásamt 14 öðrum þingmönnum gerður að talsmanni barna á Alþingi og skrifaði undir yfirlýsingu þar sem stóð, með leyfi forseta:

„Ég […] heiti því að hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi við störf mín sem þingmaður á Alþingi Íslendinga.“

Neðar stendur, með leyfi forseta:

„Ég mun leitast við að meta og vekja athygli á áhrifum þeirra ákvarðana sem teknar eru á Alþingi á börn dagsins í dag sem og börn framtíðarinnar.“

Nú er það þannig að í 10. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna stendur að það eigi að leitast við því að sameina fjölskyldur eins hratt og auðveldlega og mögulegt er þegar um börn er að ræða. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort í hlutverki sínu sem talsmaður barna á Alþingi hafi þingmaðurinn ekki alvarlegar áhyggjur af því að verið sé að setja hér í lög greinar sem munu draga úr möguleikum barna til að vera með fjölskyldu sinni, nokkuð sem fer algerlega í bága við barnasáttmálann, sem undirritaður hefur ritað undir og lýst yfir að hann muni fylgja og reyna að hafa að leiðarljósi?