154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:24]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir hans andsvar. Jú, jú, ég er alveg gjörsamlega sammála. Ég hef barist með kjafti og klóm fyrir því og Flokkur fólksins var stofnaður út af baráttunni fyrir því að ekkert barn þyrfti að lifa við fátækt eða sárafátækt. Þannig að barátta fyrir börn hefur verið aðalbaráttumál Flokks fólksins síðan hann kom á þing og ég tel mig hafa barist með kjafti og klóm fyrir því. Ég er honum alveg sammála í því að við eigum alltaf að hugsa um hagsmuni barna fyrst og fremst. Ég sé ekkert athugavert við það að ef barn kemur hingað á flótta og það fær vernd þá eigi það rétt á að fjölskylda þess komi hingað líka. En hvað eigum við að gera ef barn kemur hingað á flótta og það biður um að fjölskyldan komi og fjölskyldan, segjum að þar sé baráttumaður Hamas, yfirlýstur baráttumaður Hamas, er í hryðjuverkastarfsemi? Hvað eigum við að gera? Ég spyr: Hvernig eigum við að leysa svoleiðis mál? Ég held að við séum komin á það stig að við hljótum að þurfa að spyrja okkur að því hvort við eigum meira að hugsa um hagsmuni barnsins eða hagsmuni þjóðarinnar í þessu tilfelli. Ég segi fyrir mitt leyti: Ég gæti ekki réttlætt það ef ég ætti að samþykkja að það kæmi einhver hérna inn til landsins sem er yfirlýstur hryðjuverkamaður og hann myndi síðan fremja hryðjuverk hér. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir það og auðvitað kemur ekkert í veg fyrir að aðrir sem eru ekki einu sinni yfirlýstir hryðjuverkamenn geti framið hryðjuverk. En einhvers staðar þurfum við að draga mörkin. Við getum ekki bara lokað augunum og sagt: Heyrðu, jú, þetta er barn, við tökum bara allt, alveg sama hvaða aðstæður eru, hvernig þetta er. Síðan þurfum við líka að tékka á þessu barni: Hvernig kom það? Eru þetta virkilega aðstandendur? Þetta er flókið mál. Ég segi fyrir mitt leyti að ég myndi ekki — það yrði mjög erfitt að leysa þetta.