útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, ég var búin að svara þessu. Ég sagði: Barnið fyrst. Ég sagði það og ég stend alveg fast á því. Auðvitað eigum við að gera það. Ef fjölskylda barnsins er búin að fá leyfi til að vera hérna á landinu og það þarf að fá barnið — auðvitað. Ég sé ekkert athugavert við það, ekki neitt. Og að halda að við munum eitthvað berjast gegn því — við erum ekki að setja þessi lög til þess að berjast gegn því. (GRÓ: Það er það sem … ) Nei, ég vil ekki túlka það þannig. Eru þá Norðurlöndin að gera það sama? (BLG: Já.) Eruð þið að segja að Norðurlöndin séu nákvæmlega — af hverju eigum við þá að skera okkur úr? Í sjálfu sér hljóta þau að vera með sömu mannréttindastefnu og sömu (Gripið fram í.) sýn á samning Sameinuðu þjóðanna og við. (Gripið fram í.)