154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:29]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er liðið rúmt ár síðan við loksins eftir margar tilraunir náðum að breyta lögum um útlendinga og það er í sjálfu sér mjög ánægjulegt að sjá hvernig mál hafa þróast í umræðunni á þingi og í samfélaginu. Það voru teknir hér slagir sem skiptu máli og ég vil orða það þannig að hinn þögli meiri hluti samfélagsins hafi vaknað og risið upp. Og nú sjáum við að þeir flokkar sem hér eru, eins og þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar, sem hvað harðast stóðu í baráttu gegn okkur með tilheyrandi áhrifum á sínum tíma, að það er enginn þingmaður einu sinni á mælendaskrá frá þessum flokkum. Þeir sem reyna hér að halda uppi einhverju andófi af veikum mætti eru nokkrir Pírataþingmenn. Þetta er auðvitað mjög ánægjulegt, að samstaðan um þetta mikilvæga mál skuli vera komin á þennan stað. En það gekk ekki átakalaust.

Það er ágætt að rifja það upp líka og hægt að setja það í samhengi við málflutninginn eins og hann er hér í þessari umræðu núna að það kom fram hjá hv. þm. Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur áðan að þetta frumvarp, yrði það að lögum, myndi flækja málin, myndi ekki skila neinum árangri, yrði kostnaðarsamara o.s.frv. Þetta er nákvæmlega sami söngurinn og var hér í fyrra þegar haldið var uppi málþófi þegar við komum í gegn breytingu á lögunum þá. Svo sjáum við bara árangurinn. Hann er alveg mælanlegur og sýnir sig vel.

Það kom fram hér áðan að frumvarp á síðasta ári væri svartur blettur í sögu Alþingis, virðulegur forseti. Ógeðsfrumvarpið, sem svo var kallað, væri svartur blettur í sögu Alþingis. Um það erum við greinilega ekki sammála. Þannig að hingað erum við komin í þessari umræðu. Án til þess að gera mikillar fyrirhafnar í þinginu þá er meiri hlutinn í sterkri samstöðu að ná í gegn breytingum sem færa okkar löggjöf nær þeim markmiðum sem við settum okkur í upphafi, færa okkar löggjöf að því sem gengur og gerist hjá nágrannaþjóðum okkar og löndum Evrópu. Vandamálið var að verða óyfirstíganlegt hér á landi, kostnaðurinn gríðarlegur, áhrif á félagslega kerfið og heilbrigðiskerfið þannig að við réðum illa orðið við þetta. Sum sveitarfélög voru orðin það yfirsetin að þolinmæði fólks var algjörlega á þrotum og félagslegt kerfi og skólakerfi sveitarfélaganna réðu ekkert við vandamálin. Við þessar aðstæður urðum við að grípa inn í og við höfum leitað í smiðju Norðurlandanna, sérstaklega þeirra sem voru með hvað opnasta löggjöf sem að þessu sneri. Við höfum leitað í reynslu þeirra, hlustað var á viðvaranir þeirra og við njótum þess nú að geta sett hér í lög atriði sem skipta miklu máli inn í framtíðina af því að reynslan er fyrir hendi. Við vitum að þetta mun skila árangri alveg eins og við vissum það í fyrra að ef frumvarpið yrði að lögum myndi koma árangur.

Því var haldið fram hér í ræðustól Alþingis áðan að reynslan af sambærilegum ákvæðum væri mjög slæm í öðrum löndum, samkvæmt einhverjum ótilgreindum rannsóknum sem var vitnað til. En hvernig má það vera þegar markmið Norðurlandanna hafa náðst með því að innleiða sambærileg ákvæði og við erum búin að vera að innleiða í lög? Þessar hertu reglur á Norðurlöndum hafa fækkað umsóknum, það er markmið, sérstaklega tilhæfulausum umsóknum. Reynslan að mati þessara landa og þeirra landa sem eru víða í Evrópu að taka upp sambærilega löggjöf, sambærileg atriði, er góð af því að markmiðin sem þessi lönd settu sér hafa gengið upp. Horfum á það hver árangurinn er hérna hjá okkur á þessum 14–15 mánuðum sem liðnir eru og hvers við megum þá vænta þegar við komum með enn betri og enn fleiri úrræði núna í þessum lögum sem verða væntanlega afgreidd í gegnum þingið í þessari eða næstu viku. Frumvarpið, lögin sem var haldið hér fram að myndi ekki bera neinn árangur, hafa bara erfiðleika í för með sér, aukinn kostnað o.s.frv. Ja, árangurinn mælist í því að umsóknir um vernd á Íslandi eru 60% færri á fyrstu fjórum mánuðum ársins heldur en þær voru á fyrstu fjórum mánuðum síðasta árs. Breytt vinnulag er einnig að skila okkur því að við vísuðum burtu á landamærum yfir 500 manns í fyrra, ef ég man rétt. Það var umtalsverð aukning á milli áranna 2022 og 2023 í þeim efnum. Ef ég fer með rétta tölu, það er einhvers staðar á þessu bili alla vega, þá held ég að þetta sé þegar komið í um 350 á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs og stefnir í það með sama hlutfalli að verða yfir 1.000 á þessu ári.

Þetta er glæsilegur árangur. Þetta eru markmiðin sem við settum okkur og þrátt fyrir allan bölmóðinn, getum við sagt, um að þetta myndi ekki bera neinn árangur, hafa aukinn kostnað í för með sér, við myndum aldrei ná þessu í gegn o.s.frv., þá erum við að sigla þessum árangri í hús og við erum mjög sátt við það. Þetta er eitt af okkar stærstu málum á þessu kjörtímabili, að koma skikki á þessi útlendingamál, setja okkur á sama stað og aðrar Evrópuþjóðir, nágrannaþjóðir okkar, þannig að við séum ekki að fá hér til landsins vegna séríslenskra reglna og málsmeðferðar á svona málum fjölda sem við ráðum ekki við.

Í þinginu var lagt fram frumvarp í vetur þar sem heimila átti sveitarfélögum að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Markmið þessa máls var fyrst og fremst það að geta svarað kalli mikils fjölda hælisleitenda um húsnæði, þeirri miklu húsnæðisþörf sem var í gangi. Nú hafa skilaboð komið frá Vinnumálastofnun um að það sé ekki þörf á þessari breytingu vegna þess að umsóknum hefur svo fækkað og það hefur hægt svo á innstreyminu. Innstreymið eru að verða mjög lítið og með þessum breytingum sem við erum að keyra hér í gegn núna á það eftir að verða enn minna. Dælurnar eru í gangi við að afgreiða það fólk sem var í kerfinu og við erum að fara með aukinn fjölda fólks úr landi aftur sem ekki á samkvæmt þeim reglum sem gilda að fá hér vernd.

Þetta er nú staðan í þessum málum, virðulegur forseti. Þetta eru auðvitað mjög mikil tímamót sem við erum að upplifa í þessum málaflokki. Tímamótin felast í þeim miklu breytingum sem eru að verða. Þessi málaflokkur verður innan skamms ekki það vandamál sem hann var. Þetta færist í eðlilegt horf og við förum að geta einbeitt okkur að því að hjálpa því fólki sem raunverulega á rétt á því að vera með vernd á Íslandi, að aðlagast samfélaginu, hjálpa börnum þeirra að læra tungumálið og þeim sjálfum og gera það fólk að gegnum og góðum þjóðfélagsþegnum. Það er það sem við þurfum að einbeita okkur að þegar þetta fer að verða svona viðráðanlegur fjöldi fyrir okkur.

Tímamótin felast einnig í þessari víðtæku sátt sem er að verða um þessi mál. Vissulega var fróðlegt að fylgjast með atkvæðagreiðslunni við lok 2. umræðu málsins og sjá hvernig samstaðan er ekki alveg hrein í húsi hjá Viðreisn og Samfylkingu. Það var svolítið út og suður hvernig þingmennirnir voru að greiða atkvæði. En þeir hættir í málþófinu í þessu máli. Það er mikill áfangi og mér sýnist svona stefna forystufólksins alla vega í þessum flokkum vera að breytast mjög mikið í þá átt að standa með okkur að því að koma skikki á þessa hluti.