útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni mjög gagnlega ræðu þar sem hann velti við steinum sem við höfum aldrei áður kíkt undir. En að öllu gríni slepptu er þetta auðvitað bara tíðrætt stef um það hversu vel hafi verið gert í málaflokki útlendinga á vakt Sjálfstæðisflokksins þar sem farið hefur verið gaumgæfilega yfir þá sem hafa hvað mesta þörf fyrir vernd í þessum heimi. Ég minni hæstv. ráðherra á það að við erum enn þá að vinda ofan af stjórnleysi Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokki, m.a. hvað varðar stóran hóp frá Venesúela sem hér bíður í mikilli óvissu. Ég hnaut um það í ræðu hv. þingmanns að hann hefði ekki heyrt mikið frá þingflokki Samfylkingarinnar í þessari umræðu og ég ætla bara að koma því á framfæri, hann missti kannski af því áðan, að ég fór svo sannarlega í andsvör við formann hv. allsherjar- og menntamálanefndar í tengslum við þá óvissu sem nú er komin upp varðandi afnám 2. mgr. 26. gr. Ég ætla bara að nota tækifærið og spyrja hv. þingmann og fyrrverandi hæstv. dómsmálaráðherra hvort og hvernig Dyflinnarreglugerðin muni gilda áfram í tengslum við t.d. fylgdarlaus börn sem ekki eiga ættingja í öðru aðildarríki. Mig langar að spyrja hvaða heimildir íslensk stjórnvöld hafa eftir afnám þessarar greinar til þess að taka mál til efnismeðferðar. Ég geri ráð fyrir því að hv. þingmaður standi klár á þessum svörum eftir yfirferð formanns.