útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég biðst velvirðingar á því að dottið hafi úr minni mínu andsvar hv. þingmanns við formann allsherjar- og menntamálanefndar áðan. Ég hlustaði á það og tel reyndar að þar með hafi þingmaðurinn fengið mjög góð og traust svör við einmitt þessari sömu spurningu og hún er að spyrja mig að. Ég vil þá kannski frekar snúa að því atriði sem hún nefndi hér, að við séum að kljást við ákveðið stjórnleysi og einhverja óreglu á utanumhaldi Sjálfstæðisflokksins á þessum málaflokki í gegnum tíðina. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í dómsmálaráðuneytinu hafa í nokkur ár reynt að koma með breytingar hér inn í þingið sem ekki hafa náð fram að ganga. Það var ekki fyrr en í fyrra sem það tókst og eftir það hefur boltinn rúllað mjög hratt, bæði hér á þinginu gagnvart því að fólk er farið að breyta um skoðun og stefnu og ekki síst úti í samfélaginu þar sem hinn þögli meiri hluti hefur fengið sjálfstraust til að standa upp og segja sína skoðun. Já, straumurinn frá Venesúela var mjög ríkur hingað, miklu meiri en í nokkru öðru Evrópulandi og það er vegna séríslenskra reglna, sérstakar málsmeðferðar og svokallaðrar viðbótarverndar. Við vorum að gera miklu betur en nokkuð annað land í þeirra málum. Það er alveg rétt sem kom fram áðan að þegar við fórum að breyta vinnulagi, endurmeta aðstæður í Venesúela, þá varð stífla í kerfinu sem kostaði heilmikla glímu að takast á við. En það varð til þess að leiða fram niðurstöðu sem við búum við í dag og nú er þessi straumur hættur (Forseti hringir.) og örfáir hafa fengið vernd hér það sem af er þessu ári.