154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:45]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Ég verð samt að hryggja hann með því að segja að hvorki voru svörin hans við spurningunni minni neitt sérstaklega skýr né þau svör sem ég fékk frá hv. formanni allsherjar- og menntamálanefndar um gildi 2. mgr. 36. gr. í kjölfar brottfalls hennar. Ástæðan fyrir því að við erum í óskýrleika er að Sjálfstæðisflokkurinn hefur það á bakinu að hafa ekki náð fram þeim breytingum sem hann hefur að eigin sögn eða að sögn hv. þingmanns viljað ná fram, vegna þess að sáttin er svo lítil. Viðleitnin til að leysa þessi mál í einhvers konar þverpólitísku samtali hefur ekki verið til staðar. Ég ætla samt að leggja áherslu á að það sem við erum að ræða hérna í 3. umræðu felur í sér atriði sem lúta fyrst og fremst að fjölskyldusameiningum og rétti barna. Við í Samfylkingunni erum afdráttarlaust á móti þeim tillögum sem lagðar eru hér fram í tengslum við frekari þrengingu á fjölskyldusameiningum, svo að það komi fram. Það er líka réttaróvissa áfram í tengslum við 2. mgr. 36. gr., (Forseti hringir.) sem er í boði Sjálfstæðisflokksins, og þjónustusviptingin sem lögð var til í fyrra var ómannúðleg og við í Samfylkingunni myndum aldrei nokkurn tímann samþykkja hana væri hún lögð fram aftur.