útlendingar.
Virðulegur forseti. Já, þó það nú væri að það sé einhver ágreiningur á milli okkar Sjálfstæðismanna og Samfylkingar í þessu máli enn til staðar. Þau lög sem breytingarnar voru framkallaðar á í fyrra höfðu verið unnar í þverpólitísku samstarfi (Gripið fram í.) og eins og staðan var þegar við ráðherrar Sjálfstæðisflokksins vorum að koma fram með breytingartillögur í þessu máli var harla ólíklegt að menn gætu náð saman um það. Við horfðumst í augu við raunveruleikann, við vandann. Við sáum við hvað var að glíma. Við gerðum okkur grein fyrir afleiðingum þess og reyndum að laða fram breytingar hér í þinginu sem ekki gengu í gegn fyrr en í fyrra, eftir ítrekaðar tilraunir. Þar áttum við bæði við samstarfsflokk okkar í ríkisstjórn en ekki síður aðra flokka hér á þingi. Svo geta menn metið það hver árangurinn er, metið það hvort þessar breytingar eru góðar eða ekki og ég met það út frá þeim árangri að markmið okkar með þessum breytingum er að ganga fram.