útlendingar.
Virðulegur forseti. Jú, einmitt fólkið sem uppfyllir skilyrðin. Við eigum að taka vel á móti því. Það er það sem ég kom inn á áðan. Það var niðurstaða kærunefndar útlendingamála að fólk frá Venesúela uppfyllti þessi skilyrði. Það var þvert á mat annarra þjóða í kringum okkur. Eftir mikla vinnu sem var sett í gang þá var þetta endurmetið og matið var sambærilegt við það sem er hjá öðrum þjóðum í Evrópu og þessi stóri straumur hætti að koma hingað. Það er nefnilega þannig að þetta er einhver fallegasti samningur Sameinuðu þjóðanna og það sem er kannski ljótt við hann á tímum í dag er hversu mikið er verið að reyna að misnota hann. Það er ekkert annað sem er í gangi og það kallar á mikla vinnu við að greina og vinna úr málum. Þetta með ógeðsfrumvarpið og ákvæðið um það, eins og það er orðað hér, að henda fólki út á götu — þetta er auðvitað allt saman sett í stílinn. Í þeim lögum er gert ráð fyrir því að fólk sem hefur fengið höfnun á því að fá vernd á Íslandi eigi að fara úr landi. Það er ekki alltaf sem það getur gengið eftir. Það geta verið mjög erfiðar aðstæður í þeirra heimalandi. Það getur verið erfitt að ná í ferðagögn, vegabréf og aðra hluti. Á meðan þessir einstaklingar eru í samvinnu við yfirvöld um það að fara úr landi þá er þeim ekki, eins og orðað er, hent út á götu. Þá eru þau áfram í umsjá okkar og við sjáum um þau. Ef þau hafna öllu samstarfi við stjórnvöld um að framfylgja lögum og niðurstöðum, lögmætum niðurstöðum, (Forseti hringir.) þá getum við auðvitað ekki haft þetta fólk í okkar umsjá lengur.