154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:55]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hvort um mansal er að ræða eða ekki er örugglega mjög erfitt að staðreyna í einhverjum tilfellum. Stjórnvöld gera auðvitað það besta til að upplýsa um það og ég treysti þeim til þess. En aðstæður eru erfiðar og hvort stjórnvöld hafi alltaf rétt fyrir sér get ég ekkert fullyrt um frekar en nokkur annar held ég. Já, það er breytingin með Venesúela, sem skipti okkur gríðarlega miklu máli, að það sé ekki vegna lagabreytinganna. Það er auðvitað alrangt mat hjá hv. þingmanni. 30 daga reglan hefur einmitt mikil áhrif í þessu sambandi. Það var nú bara þannig að eftir að lögin tóku gildi voru fjölmargir flóttamenn frá Venesúela sem kusu að fara sjálfviljugir úr landi til að lenda ekki í þeirri reglu. En ég orðaði það líka hér áðan að það hefði verið breyting á lögum og breytt vinnulag sem hefði skapað þann árangur (Forseti hringir.) sem við sjáum nú og það er enn búið að bæta í af núverandi hæstv. dómsmálaráðherra í þeim efnum. Og svo sjáum við þetta frumvarp núna þar sem mér liggur við að segja að við séum að loka hringnum.