154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:56]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Varðandi það að Sjálfstæðisflokkurinn hafi gert hvað hann gat í þessum málum þá vil ég benda á að þessi málaflokkur er á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins. Þeir hafa verið með dómsmálaráðuneytið undanfarin ár og þetta er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Þetta er á ábyrgð Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og VG. Það að vísa til þess að það séu flokkar í minni hlutanum sem hafi verið að koma í veg fyrir eða eitthvað reynt að stoppa hluti er bara ekki rétt. Það er búinn að vera þingmeirihluti, eins og ég skil það, fyrir miklu strangari reglum en við höfum samþykkt nú þegar í frumvarpi sem er kennt við hv. þingmann og það er líka þingmeirihluti núna fyrir því að hafa það frumvarp sem hér er til umræðu öflugra og strangara, svo það liggi fyrir. Ég skil það ekki öðruvísi en að Flokkur fólksins og Miðflokkurinn séu hlynntir því að það verði tekið á þessu máli af myndugleika og eitthvað gert sem skiptir máli. Það hefur ekki verið gert hingað til.

Mig langar að spyrja hv. þingmann í ljósi ræðu hæstv. dómsmálaráðherra í gærkvöldi um það hvort hann styðji breytingartillögu Flokks fólksins sem tekur mið af eftirfarandi ummælum hæstv. dómsmálaráðherra í gær: Útlendingur nýtur ekki verndar ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt brot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Útlendingur nýtur ekki heldur verndar þegar svo háttar sem í f-lið 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Þetta þýðir að útlendingur sem er búinn að brjóta af sér verði vísað af landi brott. Mun hv. þingmaður styðja þessa breytingartillögu, sem ég æski að hann geri miðað við skoðanir hans á málinu og hann er jú bundinn sannfæringu sinni samkvæmt stjórnarskránni? Hver er afstaða hans til þessarar breytingartillögu?