154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[14:58]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Já, það er alveg rétt að málaflokkurinn er búinn að vera á ábyrgð okkar Sjálfstæðismanna í langan tíma og eins og ég sagði áðan þá gekk okkur erfiðlega að koma breytingum í gegn, m.a. vegna samstarfsflokka í ríkisstjórn og sérstaklega eins samstarfsflokks í ríkisstjórn. Það liggur fyrir. Hvort þingmeirihluti hafi verið fyrir þeim breytingum — ég veit um afstöðu Flokks fólksins en ég veit líka að í fyrra, það er ekki lengra síðan, um þetta leyti í fyrra eða aðeins fyrr á árinu þá greiddu allir þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar atkvæði gegn lagafrumvarpinu, lagabreytingunum. En með þrautseigju, undir forystu Sjálfstæðisflokksins, hefur þetta tekist. Breytingarnar eru að eiga sér stað og árangurinn lætur ekki á sér standa. Þannig að við lítum nokkuð stolt yfir veginn í því hvernig við höfum haldið á þessum málum, tekist á við gríðarleg vandamál sem sköpuðust í kerfinu af festu, brugðist við og erum að skila árangri. Ég á eftir að kynna mér betur breytingartillögu hv. þingmanns eða Flokks fólksins við frumvarpið, skoða lögmæti hennar áður en ég get tjáð mig um það hvort ég muni styðja hana eða ekki.