154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:02]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Aðstæður inni á Alþingi hafa verið mjög sérstakar á undanförnum árum þegar kemur að myndun ríkisstjórna. Við getum orðað það þannig að fyrir alla aðila hefur verið fátt um fína drætti. Það segir okkur bara þá sögu, sem við sjáum svo endurspeglast til að mynda í Reykjavíkurborg, hvað það þýðir, hvaða orku það þarf til þess að koma alvörubreytingum í gegn í mörgum málum og hvert málamiðlanirnar geta leitt okkur. Vissulega hefðum við viljað ná árangri í þessu fyrr og betur en það verður ekki af okkur tekið að við gáfumst aldrei upp og erum að skila þessum árangri í hús. Það voru atriði sem varð að semja um í fyrra í því frumvarpi sem ég kom í gegn. Það eru atriði sem eru inni í frumvarpinu núna hjá hæstv. dómsmálaráðherra. Ég boðaði það strax þá að hafin væri vinna við að skrifa næsta frumvarp og við erum komin með það hingað í dag og erum að afgreiða þessa dagana. (Forseti hringir.) Ég held að við séum þá komin á mjög góðan stað í þessum málaflokki.