útlendingar.
Herra forseti. Ég lýsi ánægju minni með að við séum komin á lokametrana í því að breyta útlendingalögunum, sem hefur verið mjög brýnt verkefni. Ég vil þakka nefndinni fyrir hennar góðu störf. Málinu var reyndar vísað eftir 2. umræðu aftur í nefndina til þess að skoða sérstaklega ákvæði um fjölskyldusameiningu og formaður nefndarinnar, hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir, hefur gert góða grein fyrir afstöðu nefndarinnar hvað það varðar. Ég tek heils hugar undir það sem kom fram hér í hennar framsöguræðu hvað það varðaði í upphafi þessarar umræðu.
Það verður að segjast eins og er að það er ánægjulegt, og ég tek undir það sem hér hefur verið sagt, að það er mikil breyting á viðhorfi margra þingmanna og sumra flokka til mikilvægis þess að taka á þessum málaflokki. Ég fagna því að sjálfsögðu og það er ánægjulegt að náðst hafi breiðari samstaða um mikilvægi þess að við færum hér regluverkið til samræmis við það sem er í nágrannalöndum okkar, Danmörku, Noregi o.s.frv. Það er afar brýnt og ég hef sagt það áður að þessi málaflokkur útlendingamála, sem er mjög stór málaflokkur, verður að sjálfsögðu að taka mið af fámenni þjóðarinnar. Það eru engin rök sem mæla með því að Ísland, ein fámennasta þjóðin í Evrópu, skuli hafa veikara regluverk í þessum málaflokki en önnur lönd. Það er bara ávísun á það að við fáum hér fleiri umsóknir hælisleitenda og það er nákvæmlega það sem hefur gerst. Það sem hefur gerst hér er að við erum að fá hlutfallslega mun fleiri umsóknir um hæli hér á landi heldur en í öðrum löndum og ástæðan fyrir því er sú að hér hefur regluverkið verið veikara. Við erum með ákvæði sem önnur lönd hafa ekki, eins og t.d. 2. mgr. 36. gr. sem gengur út á það að þeir sem hafa fengið hæli í öðru landi geti sótt um hæli hér, á sama tíma og önnur lönd vísa slíkum umsóknum frá. En þessu erum við að breyta. Þetta er ein af þessum mikilvægu breytingum í þessu frumvarpi og ég fagna því sérstaklega vegna þess að við eigum að sjálfsögðu að vera með sama regluverk og önnur lönd. Ég er ánægður með að samstaða hafi náðst um þetta þannig að við erum komin í þá vegferð að ná því mikilvæga markmiði að samræma regluverkið þegar frumvarpið verður samþykkt.
Það er eitt sem mig langaði að nefna hér, herra forseti, sem tengist þessum málaflokki og mér finnst mikilvægt að komi fram. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að við eigum að hjálpa þeim sem eru í nágrenni við sínar heimaslóðir. Ég nefni t.d., og ég nefndi það reyndar í ræðu minni hér við 2. umræðu, afganska flóttamenn. Afganskir flóttamenn eru einn stærsti flóttamannahópurinn í heiminum. En það er búið að gera könnun, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerði könnun, meðal afganskra flóttamanna og þar kom fram að 70% þeirra vilja fara til Íran, sem er nágrannaríki Afganistan. Það er þannig að það koma u.þ.b. 4.000 afgangskir flóttamenn að landamærum Írans á dag. Einhverjum þeirra er vísað til baka, sérstaklega ungum karlmönnum, u.þ.b. 60% fá að fara yfir landamærin til Írans. Það kemur fram í þessari könnun, sem er mjög fróðleg, að Afganir svari því til, afgangskir flóttamenn, að ástæðan sé sú að tungumálið er hið sama, menningin hin sama og trúin sú sama svo að þetta fólk aðlagast. Þessir afgönsku flóttamenn eiga mjög auðvelt með að aðlagast í Íran. Þeim finnst þeir vera komnir á heimaslóðir, ef þannig má orða það.
Þetta er nefnilega nákvæmlega kjarni málsins, að við eigum að aðstoða þessi ríki. Hvað sem okkur finnst um Íran þá getum við t.d. aðstoðað Sameinuðu þjóðirnar í því landi, sem hafa byggt skóla o.s.frv. og þurfa sannarlega á fjárframlögum að halda til að geta mætt þessum mikla fjölda flóttamanna sem kemur þangað. Við getum aðstoðað í þessum efnum. Þið sjáið bara muninn á því að þegar afganskir flóttamenn eru að koma hingað til Íslands þá þurfa þeir náttúrlega að koma inn í allt annan menningarheim og allt annað tungumál og hér er kristin trú ríkjandi o.s.frv., þannig að aðlögunin verður margfalt erfiðari fyrir fólk að koma hingað heldur en að fara t.d. til nágrannaríkja Afganistan. Mér finnst vanta svolítið í þessa umræðu hvað við getum látið gott af okkur leiða með þessum hætti. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur gefið út tölur á borð við þær að við getum hjálpað u.þ.b. 15 einstaklingum á heimaslóð á móti einum einstaklingi á Vesturlöndum, þannig að við getum aðstoðað margfalt fleiri með því að fara þessa leið. Mér finnst að við eigum að hafa þetta í huga þegar við ræðum þennan málaflokk.
Síðan langaði mig aðeins að koma inn á það sem hefur verið rætt hér og var svolítið rætt við 2. umræðu. Ég fagna því að Samfylkingin hafi tekið svona ákveðna stefnubreytingu í þessum málaflokki þó að hún sé reyndar á móti ákvæðinu um fjölskyldusameiningu — en mér fannst koma fram í þeirra málflutningi að það væri ekki þetta mikla álag á innviði skólanna o.s.frv. eins og margur vill halda fram. Ég verð að segja að þetta er ekki rétt og það er mjög mikilvægt að við höfum í huga að staðan eins og hún hefur verið er afar íþyngjandi sveitarfélögum, eins og t.d. í Reykjanesbæ og í Hafnarfirði þar sem meginþorri hælisleitenda hefur dvalið, og svo hér á höfuðborgarsvæðinu. Það verður náttúrlega að hafa samráð við sveitarfélögin í þessum málaflokki, það segir sig sjálft því að þetta fólk, hælisleitendur, kemur til með að búa í þessum sveitarfélögum. Þarna finnst mér að Útlendingastofnun hafi farið algerlega fram úr sér þegar hún var t.d. að taka á leigu húsnæði í Reykjanesbæ án nokkurs samráðs við sveitarfélögin sem síðan þurfa að þjónusta þennan hóp. Það er ekki langt síðan, það var bara í febrúarmánuði sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar kom því á framfæri með mjög skýrum hætti að Hafnarfjarðarbær gæti ekki tekið á móti fleiri flóttamönnum og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Það kom fram í máli bæjarstjórans að starfsmenn í skólum væru að bugast og það væru ekki til sérfræðingar til að sinna þessu og ekki væri haft samráð við sveitarfélögin. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði skrifaði grein í Morgunblaðið um þetta, mjög góða grein þar sem hún sagði að það ríkti óefni í málefnum hælisleitenda.
Við verðum að hlusta á þessar raddir og við verðum líka, herra forseti, að hlusta á þjóðina. Rúmlega 60% þjóðarinnar telja að við séum komin að þolmörkum við að taka á móti hælisleitendum og í Suðurkjördæmi, eins og t.d. í Reykjanesbæ, er þessi tala 80%. 80% íbúa í Suðurkjördæmi telja að við getum ekki tekið á móti fleiri hælisleitendum. Auðvitað eigum við að hlusta á þessar raddir, sveitarfélögin og þá sem virkilega þurfa að sinna þessum málaflokki, sem eru með ákall um að við verðum að bregðast við þessum mikla fjölda.
Það er nákvæmlega það sem er verið að gera með þessu frumvarpi, það er verið að færa regluverkið til sama horfs og í nágrannalöndunum. Auðvitað er þetta frumvarp líklegt til að draga úr fjölda umsækjenda, það er bara ósköp einfalt. Það hefur nú þegar sýnt sig að hælisumsóknum fer fækkandi og það á sérstaklega rætur sínar að rekja til kærunefndar útlendingamála sem við erum að breyta hér í þessu frumvarpi. Við erum að breyta samsetningu þessarar nefndar og fækka úr sjö nefndarmönnum í þrjá.
Ég tel þetta afar tímabæra breytingu og mikilvæga. Ég hef frá upphafi talað fyrir því og ég lagði fram þingsályktunartillögu áður en þetta frumvarp leit dagsins ljós um að það yrði fækkað í þessari nefnd. Mér finnst reyndar að þessi nefnd hafi haft ótrúlega mikil völd, herra forseti, því að hún í raun og veru tók ákvörðun um það, sjö manna nefnd embættismanna, að taka skilyrðislaust á móti hælisleitendum frá Venesúela sem gerði það að verkum að Ísland var síðan auglýst í Venesúela, í höfuðborginni Karakas, sem mjög ákjósanlegur staður til að koma á til að sækja um hæli. Og við sáum hvað gerðist. Hér komu hundruð ef ekki á annað þúsund manns á mjög skömmu tímabili til landsins sem olli þessu gífurlega álagi. Þetta er bara ákvörðun einnar nefndar og það er í mínum huga ekki hægt að ein nefnd geti tekið ákvörðun með þessum hætti, bundið ríkisvaldið með þessum hætti, ríkissjóð með verulegum útgjöldum. Höfum það í huga að nefndin gerði aldrei tilraun til þess að fara til Venesúela og kynna sér aðstæður á sama tíma og kærunefnd útlendingamála í Noregi sendi sérstaka sendinefnd til Venesúela til að kynna sér aðstæður og komst að þeirri niðurstöðu í skýrslu þess efnis að það væri ekki grundvöllur fyrir því að taka skilyrðislaust á móti hælisleitendum frá Venesúela. Á sama tíma var íslenska kærunefndin, sem hafði aldrei farið niður eftir til Venesúela, á allt annarri skoðun. Þetta eru vinnubrögð sem hafa bara komið okkur í verulegan vanda, valdið miklu álagi og miklum útgjöldum og ég fagna því að þessu skuli vera breytt í þessu frumvarpi.
Síðan vil ég segja aðeins varðandi fjölskyldusameiningar að þá hef ég ekki áhyggjur af því að þetta ákvæði komi til með að hafa slæm áhrif á börn eins og sumir þingmenn hafa viljað halda fram. Við erum að fara hér sömu leið og Danmörk að hluta til. Ég hef nú spjallað við þingmenn frá Danmörku í flóttamannanefnd Evrópuráðsins þar sem ég á sæti og þeir segja mér þar að þetta ákvæði hafi gefið góða raun og vilja ekki kannast við að þetta hafi haft slæm áhrif á börn. Við verðum einfaldlega að hafa þessar sömu reglur, eins og ég er búinn að segja hér og sagði í minni ræðu, og tíðkast í nágrannalöndunum, hafa þessa tveggja ára reglu sem er þó undanþáguákvæði fyrir. Það lýtur m.a. að því að hægt er að sækja um fyrr ef viðkomandi hefur uppfyllt ákveðin skilyrði sem m.a. varða tungumálið og að standast próf í íslensku, sem ég fagna mjög vegna þess að það er hluti af því að aðlögun gangi vel að fólk nái tökum á íslenskunni. Ég er þeirrar skoðunar að það geti allir lært íslensku. Við þurfum hins vegar að bæta í stuðninginn og það erum við að gera í þessari aðgerðaáætlun sem við samþykktum á þinginu fyrir ekki svo löngu og lýtur að auknum stuðningi hins opinbera við íslenskukunnáttu. Ég fagna því sérstaklega af því að þetta er algerlega lykillinn að því að fólk nái að aðlagast, að það nái tökum á tungumálinu.
Að lokum vil ég segja, herra forseti, að ég fagna því að við séum komin það langt í þessu mikilvæga máli að brátt munum við samþykkja þetta frumvarp. Það mun hafa breytingar í för með sér til hins betra. Það mun draga úr þessu mikla álagi sem hefur verið á innviðum og samfélaginu vegna mikils fjölda flóttamanna sem hefur sótt um hæli og umsóknum mun fækka og ég fagna því sérstaklega.