154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:19]
Horfa

Guðný Birna Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér fór hv. þingmaður yfir mikilvægi þess að taka á þessum málaflokki. Vissulega er það rétt því að angar hans teygjast víða, líkt og til sveitarfélaganna. Umræða um flóttafólk, hælisleitendur og jafnvel útlendinga í leit að starfi á landinu okkar er stundum sett í sama flokk til að stækka töluna og jafnvel ala á ótta og óöryggi. En fjölgun íbúa á Íslandi hefur verið gríðarlega hröð á stuttum tíma, alveg sama hvaðan fólk kemur eða í hvaða tilgangi. Þegar þessar breytingar gerast svona hratt er hætt við að við missum tök á ýmsum atriðum eins og fjölgun leik- og grunnskóla, fjölgun framhaldsskóla, fjölgun starfsfólks í innviðum okkar líkt og heilbrigðisstarfsfólks, lögreglu, fólks í landamæravörslu og sjúkraflutningum og þannig mætti áfram telja. Allt þetta hefur áhrif og það er ekki hollt fyrir okkur sem samfélag að horfast ekki í augu við stöðuna því að þessar breytingar eru kostnaðarsamar og flóknar fyrir ríkið en einnig fyrir sveitarfélögin okkar.

Mig langar, herra forseti, að ræða sérstaklega stöðuna í Reykjanesbæ þar sem Vinnumálastofnun hefur komið fyrir tæplega 1.000 manns í leit að alþjóðlegri vernd utan samninga þrátt fyrir að Reykjanesbær sé þegar með tvo samninga um móttöku, annars vegar samning um alþjóðlega vernd, með 70 manns frá árinu 2004, og hins vegar samning um samræmda móttöku flóttafólks, upp á 250 manns. Reykjanesbær er eitt af aðeins 14 sveitarfélögum á Íslandi sem taka á móti fólki á flótta. Aðeins 22% sveitarfélaga landsins taka á móti fólki á flótta með samningum.

Virðulegi forseti. Þetta er langtímaverkefni sem er viðkvæmt, eðlilega. Við hljótum þá að gera þá sjálfsögðu kröfu að móttaka fólks á flótta sé skipulögð til framtíðar svo að við séum ekki einungis að leita til fárra sveitarfélaga sem standa þá frammi fyrir þenslu og þrýstingi á innviði sem ekkert fjármagn fylgir samhliða til að efla.