154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:21]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég náði því nú ekki alveg hvort hv. þingmaður var að spyrja mig sérstaklega, en ég vil bara taka undir það sem hv. þingmaður sagði hér um sveitarfélögin. Hv. þingmaður þekkir þennan málaflokk mjög vel, verandi forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ, og hefur staðið sig vel. Ég var meira að segja viðstaddur 30 ára afmæli Reykjanesbæjar þar sem hv. þingmaður stjórnaði fundi mjög rösklega. Ég vil óska Reykjanesbæ til hamingju með afmælið af því að forseti bæjarstjórnar er hér með okkur í dag. Ég tek undir það sem hefur verið sagt hér, ég og fleiri höfum fjallað um það, varðandi sveitarfélögin, að það hafa verið gerð ákveðin mistök í þessu ferli. Mér finnst Útlendingastofnun hafa farið fram án samráðs við sveitarfélögin. Reykjanesbær þekkir það t.d. mjög vel að Útlendingastofnun, það er reyndar Vinnumálastofnun sem sér orðið um þjónustuþáttinn, hefur verið að taka húsnæði á leigu án nokkurs samráðs. Það er bara ávísun á mikið álag og vandræði. Þannig á hið opinbera náttúrulega ekki að koma fram við sveitarfélögin því að þau gegna algerlega lykilhlutverki í því ferli að taka á móti flóttafólki. Til þess að það takist vel þarf að vinna það í fullu samráði við sveitarfélögin, að þau fái þá aðstoð sem þau þurfa á að halda. Það hefur verið misbrestur á því og ég held að ég fari rétt með það að Reykjanesbær hefur haft útgjöld af þessum málaflokki án þess að fullar greiðslur hafi komið fyrir frá hinu opinbera og það þarf að sjálfsögðu að mæta því. En ég bind miklar vonir við að nú þegar þetta frumvarp verður samþykkt munum við sjá breytingu á þessu. Umsóknum mun fækka og það mun draga úr þessu álagi og það er það sem við erum öll að stefna að.