154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:25]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek heils hugar undir það með hv. þingmanni að fleiri sveitarfélög þurfa að koma að þessu máli. Það hafa fyrst og fremst verið sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesbær og Hafnarfjörður, sem hafa þurft að mæta þessum mikla fjölda og veita þessa þjónustu. Ég rakti það hér í ræðu minni hvað bæjarstjórinn í Hafnarfirði hafði um þessi mál að segja fyrir skömmu; það var í janúar eða febrúar sem hún skrifaði grein í Morgunblaðið þar sem hún rakti það mjög ítarlega hversu gríðarlegu álagi þau hefðu þurft að mæta vegna fjölgunar flóttafólks í Hafnarfirði. Það segir sig sjálft að það verður að sjá til þess að því álagi sé jafnað út og að það verði ekki einstaka sveitarfélög sem þurfi að taka meginhlutann af þeim hópi sem kemur til landsins. Það er mjög mikilvægt í mínum huga, ég tek heils hugar undir það með hv. þingmanni. Svo að ég komi aðeins inn á það sem hv. þingmaður nefndi líka varðandi stefnumörkunina þá þurfum við auðvitað að hafa hana með þeim hætti til frambúðar að hún verði skilvirk. Við þurfum t.d. að huga að málefnum eins og búsetuúrræðum. Þegar fólk hefur fengið synjun á umsókn sinni og bíður eftir að yfirgefa landið þá hafa flest ríki í kringum okkur einhvers konar búsetuúrræði fyrir þá einstaklinga. Ég tel eðlilegt að við förum sömu leið hvað það varðar. Það eru þessir hlutir sem lúta að stefnumörkuninni sem á í mínum huga fyrst og fremst að vera með þeim hætti að við séum á sömu vegferð og nágrannaríkin, með sama regluverk. Og það erum við svo sannarlega núna með þeim miklu breytingum sem við erum að gera á útlendingalögunum og við þurfum að halda áfram á þeirri vegferð að samræma þessa hluti við löndin sem eru í kringum okkur, Norðurlöndin og löndin í Evrópu.