154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:30]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég kannast við það mál sem hv. þingmaður reifaði hér stuttlega. Það hefur verið þannig, eins og hv. þingmaður nefndi réttilega, að þeir sem eru að bíða eftir niðurstöðu og hafa dvalarleyfi hafa fengið að starfa. Svo kemur sú niðurstaða að viðkomandi þarf að yfirgefa landið og verður auðvitað fyrir miklum vonbrigðum með að missa það starf og þurfa síðan að fara úr landi. Ég verð nú að segja, það er mín persónulega skoðun, að ég held að það sé kannski ekki gott að vera að gefa fólki væntingar um að það sé virkur þátttakandi í samfélaginu; ákveðnar væntingar um að fá jákvæða niðurstöðu, vera farinn að vinna o.s.frv., og síðan er það tekið af fólki. Að sama skapi sjáum við t.d. það sem gerðist í þessu Venesúela-máli, þó að það sé kannski ekki nákvæmlega það sem hv. þingmaður spurði um, að þar fær fólk þessar væntingar, þessi stóri hópur, um að koma hingað til lands og fá hér hæli. Það fær hér skilyrðislausa viðbótarvernd og síðan er úrskurðinum breytt og þessi hópur þarf að fara úr landi. Þar var verið að búa til ákveðnar væntingar sem síðan stóðust ekki sem hefur valdið þessum hópi ónæði og óþægindum. Það er mín skoðun að það sé heppilegra að fá bara nákvæmlega sína niðurstöðu áður en fólk fer að taka þátt í samfélaginu með þeim hætti sem hv. þingmaður nefndi hér. (Forseti hringir.) Formaður nefndarinnar fór yfir þetta í framsöguræðu sinni á sínum tíma, en þetta er mín afstaða gagnvart þessu máli.