útlendingar.
Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hann svaraði þó ekki spurningu minni sem var sú hvort þessi breyting væri til bóta. Þarna erum við að tala um einstaklinga sem hafa fengið atvinnuleyfi og hafa farið út úr þjónustu á vegum íslenskra stjórnvalda, á kostnað skattgreiðenda, og farið að sjá um sig sjálfir og þeir eru sviptir þessu leyfi án þess að málinu sé lokið. Það sem kannski skýtur helst skökku við þarna er að með fáránlegu löggjöfinni, sem var samþykkt hér fyrir ári, þá er það ákveðinn flokkur mála sem kærist sjálfkrafa. Sú breyting var auðvitað ekki gerð með hagsmuni umsækjenda í huga heldur til höfuðs talsmönnum einstaklinga, svo að þeir hefðu ekki færi á að bæta einni eða tveimur vikum við þann tíma sem þeir hafa til að skila greinargerð. En það er önnur saga. Það er meira að segja þannig að einstaklingur getur verið kominn með atvinnuleyfi og ákvörðunin kærist sjálfkrafa. Nú skilst mér á kærunefnd útlendingamála að málsmeðferðartíminn hafi lengst gríðarlega. Kærunefnd útlendingamála var fremur skilvirk nefnd en því hefur farið aðeins aftur, væntanlega vegna einhverra af þeim lagabreytingum sem hafa verið gerðar til að gera kerfið óskilvirkt og þungt í vöfum með fælingarmátt í huga. En svo veit maður ekki hvort einhverjar mannabreytingar í nefndinni hafi orsakað þetta sömuleiðis, en það er orðinn mjög langur málsmeðferðartími hjá kærunefndinni.
Mig langar bara að ítreka spurningu mína til hv. þingmanns, hvort hann telji þessa breytingu til bóta, að svipta fólk sem er komið með atvinnuleyfi, farið út úr kerfinu, og skikka það aftur í þjónustu á kostnað skattgreiðenda í marga mánuði.