útlendingar.
Forseti. Svo að ég verði kannski aðeins skýrari með þetta þá er niðurstaðan náttúrlega sú að viðkomandi á að yfirgefa landið. Í því felst sú ákvörðun að þá er ekki ætlast til þess að viðkomandi sé að störfum á meðan það ferli er í gangi. (Gripið fram í.) Það fer þá kannski gegn því en menn verða að lúta sinni niðurstöðu og brottvísun blasir við. Ég held bara að eðli máls samkvæmt eigi menn ekki að vera við störf þegar sú niðurstaða liggur fyrir.
Ég nefni aftur það sem ég nefndi hér áðan, og það er með þessar væntingar. Það á ekki að vera að búa til væntingar um það að þú kannski haldir í þá von, af því að þú fékkst vinnu, að þá séu hlutirnir þér í hag og þú hafir þessar væntingar um að þú getir þá verið áfram í landinu. Niðurstaðan liggur fyrir, þú átt að yfirgefa landið, og þá held ég að það sé ákveðin skilvirkni í þessu og fyrirsjáanleiki sem fólk veit að er til staðar. Ég held að það sé kannski mergur málsins í þessu.