útlendingar.
Forseti. Það að sameina fjölskyldur ætti að vera markmið en ekki eitthvað sem fólk þarf að vinna sér inn sem umbun í okkar samfélagi. Ef fólk á flótta stendur sig ekki nægilega vel þá má það ekki sameinast fjölskyldu sinni. Er það það sem við erum að leggja upp með? Streita, kvíði og óvissa eru bara nokkrar af þeim tilfinningum sem þessir einstaklingar á flótta munu upplifa. Reynsla mín eftir að hafa unnið með fólki og börnum á flótta er sú þetta fólk er fyrst og fremst í leit að öryggi og ró og enginn, og þá meina ég enginn, nær öryggi og ró þegar börnin hans eru á stríðshrjáðu svæði, eða systkini, og eru kannski langt frá því að vera örugg. Börn eiga rétt á því að vera í umsjá foreldra sinna og börn eiga rétt á öryggi og ást. Ef eitt foreldri er annars staðar og börnin eru mögulega stödd í stríði og neyð þá hljótum við að sjá að við verðum að koma þessum börnum í skjól til foreldra sinna sem eru hér. Það er svo skýrt. Það er svo kýrskýrt. Það að sameina fjölskyldur á auðvitað að vera forgangsatriði en ekki einhvers konar verðlaun eftir tvö ár af því að þú stóðst þig svo vel í íslensku og öðru. Einn dagur, ein vika, einn mánuður og eitt ár er allt of mikið fyrir barn að upplifa stríð, allt of mikið fyrir hvern sem er, sérstaklega ef við veltum fyrir okkur áhrifunum sem það hefur á börn, andlega og líkamlega, að upplifa stríð. Áföllum þessara barna sem upplifa ótta og óöryggi alla daga fjölgar.
Mér þykir furðulegt að við séum ekki bara sammála um það að ef einstaklingur er hér þá kemur fjölskyldan hans eða hennar líka hingað. Börn eru oft mikil hjálp fyrir fjölskyldur að aðlagast samfélaginu, upplifa inngildingu. Foreldrar tengjast oft öðrum foreldrum í gegnum alls konar félagsstörf, í íþróttastarfi barnanna, í skólum og leikskólum þar sem ýmislegt er í gangi sem sameinar foreldra. Þeir sem hafa búið erlendis vita e.t.v. að með því að búa þar með börnunum sínum þá kynnist maður öðrum foreldrum. Ef þú kemur einn til lands og þú átt að fóta þig einn og fjölskyldan þín er annars staðar og þú hefur stanslausar áhyggjur af fjölskyldu þinni, nærð ekki alltaf sambandi við þau, veist ekki hvernig þeim vegnar í dag, hvar þau sofa, þetta er streita. Þetta veldur áhyggjum. Þetta hefur áhrif á heilbrigðiskerfið okkar. Við erum að búa til vandamál. Við erum að búa til einstaklinga sem eru líklegri til þess að vera einangraðir. Þeir eru líklegri til að vera einmana. Þeir eru líklegri til þess að vera með geðsjúkdóma. Þeir eru líka líklegri til þess að vera með líkamlega sjúkdóma. En við ætlum að halda þeim svona í tvö ár og vona síðan að það fari bara vel.
Þetta er svo ótrúlega furðuleg nálgun. Ég bara næ ekki utan um þetta. Tungumálið, við viljum að þau kunni eitthvað ákveðið mikið í íslensku. Mér finnst rosalega mikilvægt að við styðjum innflytjendur og fólk á flótta við að læra íslensku, bara eins mikið og við getum. En við eigum í erfiðleikum með að kenna börnunum okkar íslensku. Við eigum erfitt með að kenna börnunum okkar lesskilning. Og við getum fengið fólk hingað sem er ekki einu sinni læst, það kann ekki að lesa: Ætlum við að setja íslenskupróf fyrir þá einstaklinga eftir tvö ár? Ætlum við að styðja þá það mikið að við ætlum að kenna þeim að lesa og við ætlum bara að fara alveg alla leið í þessu? Ég sé það ekki alveg fyrir mér. En ég vona að við ætlum að fara alla leið þangað ef þetta verður samþykkt vegna þess að raunveruleikinn er bara sá að ef þú ert með einstakling sem er í svokölluðu flótta- og forðunarviðbragði allan daginn út af streitu og álagi, út af áhyggjum af ástvinum, þá er bara frekar erfitt að kenna þeim einstaklingi íslensku. Ef þú ert með einstakling sem veit að börnin sín sofa örugg á nóttunni þá er auðveldara að kenna þeirri manneskju íslensku vegna þess að hún hefur rými til þess að hugsa um eitthvað annað en hvar fjölskylda hennar er. Hvar sofa þau? Er í lagi með þau? Ég er ekki búin að ná í þau í viku, hvað gerðist? Þetta er álag á heilbrigðiskerfið því þessir einstaklingar fara inn á spítala vegna þess að taugakerfið bara hrynur allt saman.
Þetta er vanhugsað. Þetta er ekki svarið. Þetta er svo mikil afturför. Ef maður hefur kannski ekki séð þetta gerast fyrir framan sig, þá bara veit ég ekki hvort maður átti sig alveg á því hversu alvarlega veikt fólk getur orðið af áhyggjum og óvissu vegna fjölskyldu sinnar. Það hefur ekki verið skoðað hvaða áhrif þetta hefur í löndunum sem við viljum bera okkur saman við, sem eru ekki eins, það er ekki búið að fara grundigt í þá spurningu hvort þetta sé það rétta. Eða erum við bara að fylgja einhverjum öðrum sem við viljum líkjast því að við erum hrædd um að ef við förum ekki sömu leið — þá hvað?
Ég held að við séum á rangri braut. Fjölskyldur vilja vera saman og það besta er alltaf að fjölskyldur séu saman, alltaf. Það er verndandi þáttur fyrir allt. Það er verndandi þáttur fyrir sjúkdóma. Það er verndandi þáttur fyrir geðsjúkdóma. Það er bara þannig að það að hafa fólk í samfélaginu sem er í stanslausu viðbragði, þar sem taugakerfi þeirra er upptrekkt allan daginn vegna áhyggna og vegna óöryggis út af fjölskyldu og börnum annars staðar, það verður kostnaðarsamt. Það verður bara mjög kostnaðarsamt. Það verður líka mjög óhollt fyrir alla þessa fjölskyldu. Ég skil ekki hvers vegna ekki er hlustað á umboðsmann barna. Ég velti fyrir mér hvort þetta eigi að hafa einhvers konar fælingarmátt eða fólk eigi ekki að vilja koma hingað vegna þess að það verður þá vesen eða eitthvað svoleiðis. Ókei, kannski er eitthvert fólk sem myndi þá ekki koma hingað. Það vitum við svo sem ekkert um og munum aldrei vita í rauninni. En þeir sem koma, erum við til í það fólk verði örugglega meira og minna veikt í samfélaginu okkar, af geðsjúkdómum, af áföllum, af áhyggjum, af líkamlegum sjúkdómum? Ég held að það sé mjög vanmetið hversu mikilvægt er að við pössum upp á að það sé ekki þannig. Og fyrir utan það að þegar þessi börn koma síðan eftir að hafa verið kannski tvö ár annars staðar, þá eru tvö ár í lífi barns rosalega mikið. Að vera í tvö ár á stríðshrjáðu svæði er bara ótrúlega langur tími. Maður veltir fyrir sér: Líklegast fleiri áföll, líklegast hafa þau verið hrædd í langan tíma eða haft áhyggjur og þetta er eitthvað sem við þurfum að aðstoða með. Það er líka skaðlegt fyrir þá fjölskyldu í því samhengi að börnin komast ekkert þegar foreldrið eða foreldrarnir eða hvernig sem það er eru kannski komnir hingað. Það að rjúfa tengsl á milli foreldra og barna er bara mannréttindabrot, myndi ég segja. En við segjum: Nei, hér kemur þú ekki með börnin þín fyrr en þú kannt nógu mikla íslensku og þú ert með þak yfir höfuð og einhvers konar innkomu eða eitthvað.
Mér finnst við líka aðeins ofmeta það hversu gestrisin við erum og hversu auðvelt það sé að fá vinnu hérna og húsnæði. Við vitum alveg að fólk fær ekki húsnæði. Það er erfitt að komast inn á leigumarkaðinn, það er eiginlega ekki hægt. Erum við í raun og veru að leggja þetta til eða erum við bara að búa til eitthvað og vona svo að það komi enginn og við þurfum ekkert að pæla í þessu meira? Það bara kemur enginn hingað. Þurfum ekkert að spá í þessu, þetta verður bara rosa smurt eins og þegar við samþykktum síðasta vor þjónustusviptinguna. Við í Pírötum reyndum eins og við gátum að segja: Nei, við setjum ekki mansalsfórnarlömb á götuna. Þá var sagt: Það gerist ekki. Það er ekkert að fara að gerast. Og hvað gerðist? Þetta verður nákvæmlega eins. Eftir fimm ár, eftir tíu ár, þá verðum við með vanda sem við ráðum ekki við vegna þess að við verðum með fólk sem er að kosta heilbrigðiskerfið okkar mjög mikla peninga.
Það er meira að segja í dag þannig að ef þú ert barn á flótta og sækir um fjölskyldusameiningu þá er fjölskylda þín ekkert mætt hingað eftir mánuð eða tvo. Nei, þetta tekur langan tíma, eitt ár, tvö ár. Á meðan er barnið sem kemur til Íslands á flótta í einhvers konar ástandi, það er hrætt alltaf. Hvar er fjölskyldan mín? Hvar er mamma mín? Hvar er pabbi minn? Eru þau á lífi? Eru þau ekki á lífi? Er þeim kalt? Þetta er raunveruleikinn. Hann er ekki fallegur en hann er svona og við getum ekki lokað augunum og sagt bara: Nei, það kemur enginn. Þetta verður allt í góðu. Það vill enginn koma hingað þegar við erum svona leiðinleg. Svo kemur fólk og það mun koma og vandinn mun vera okkar og þjóðfélagsins í heild. Þetta verður vandi fyrir okkur öll og það að við séum ekki að stefna að því að sameina fjölskyldur heldur að sundra þeim er eitthvað sem ég vona að fái barna- og menntamálaráðherra til að segja: Nei, hingað og ekki lengra, ég tek ekki þátt í þessu, vegna þess að hann er barnamálaráðherra.