154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[15:53]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Forseti. Þetta er önnur ræða mín í þessu máli þannig að ég ætla að leyfa mér að byrja hálfpartinn í miðri setningu. Mig langar til að fjalla aðeins um ákvæðið sem ég fjallaði lítið um í fyrri ræðu minni hér í dag og það er fyrirhuguð niðurfelling 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þetta er kannski eitt af þeim lagatæknilegu atriðum sem mig grunar að hinn almenni þingmaður og almenningur hafi talsverða þekkingu á. 36. gr. núgildandi laga um útlendinga fjallar um þær heimildir sem stjórnvöld hafa til að hafna því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar.

Ein af þeim góðu breytingum sem voru gerðar á lögunum árið 2016 var að gera það að meginreglu að mál sé tekið til efnismeðferðar, umsókn sé tekin til efnismeðferðar, og hefur sú meginregla haldist í lögunum þó að það hafi verið gerðar ákveðnar orðalagsbreytingar. Undantekningarnar á því að umsókn skuli tekin til efnismeðferðar eru nokkrar. Ein er sú sem er í a-lið, að einstaklingur hafi fengið vernd í öðru ríki og þá eigi að senda hann þangað. Svo er það c-liðurinn sem er gjarnan kenndur við Dyflinnarreglugerðina, sem er Evrópureglugerð sem setur ákveðin viðmið um það hvaða ríki í Evrópu beri ábyrgð á meðferð hælisumsókna. Tilgangurinn með Dyflinnarkerfinu á sínum tíma, meintur tilgangur með Dyflinnarsamstarfinu, var sá að koma í veg fyrir að einstaklingar gætu fengið umsókn sína skoðaða í mörgum Evrópuríkjum, það sem á þeim tíma var kallað, með leyfi forseta, „asylum shopping“. Það var þannig að þegar einstaklingur var búinn að fá synjun í einu ríki þá fór hann bara yfir í næsta og lét reyna á lukku sína þar.

Dyflinnarsamstarfið hefur ekki reynst vel. Það sem það hefur fyrst og fremst orsakað er að álag vegna málsmeðferðar hælisumsókna hefur lent mjög ójafnt og dreifst mjög ójafnt á Evrópuríki, kerfinu öllu til vansa og ekki síst þeim ríkjum. Þetta eru þau ríki sem eru á jaðrinum landfræðilega á svæðinu; Grikkland, Ungverjaland, Spánn, Ítalía og fleiri. Dyflinnarsamstarfið er nefnilega haldið dálítið alvarlegum ágöllum sem ekki hefur verið vilji til að laga, sennilega vegna þess að atkvæðamestu ríkjunum, þau ríki sem hafa mest að segja um þær ákvarðanir sem eru teknar í Evrópusambandinu, líkar það ágætlega að flestir umsækjendur séu einhvers staðar annars staðar. Það er mjög vinsæl skoðun að vilja endilega hjálpa fólki en bara einhvers staðar annars staðar og helst að einhver annar geri það. Þannig að það hefur ekki náðst sátt um að laga alvarlega galla á Dyflinnarsamstarfinu. Ísland hefur auðvitað ákveðna sérstöðu þar vegna landfræðilegrar staðsetningar. Það er ekkert sérstaklega auðvelt að komast til Íslands án þess að fá það sem er kallað á ensku „Dublin hit“ í öðru Evrópuríki, en það gerist þó. Það gerðist svo sem kannski í meira mæli þegar fólk fór að koma úr hinni áttinni. Nú er stór hluti flóttafólks sem kemur úr austurátt til Evrópu en þegar fólk fór að koma hingað í kjölfar hættuástands í Venesúela þá átti stór hluti þess rétt á því að mál þeirra yrði tekið til efnismeðferðar á Íslandi, ekki hægt að senda það eitthvert annað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Ekki það að þessi ríkisstjórn svo sem sá við því og bætti við mjög undarlegum ákvæðum í lögin um að það megi senda fólk, og það er nánast orðað þannig, eitthvað annað þar sem það geti mögulega sótt um vernd. Það er ekki einu sinni krafa um að það hafi fengið vernd eða sé með leyfi til komu eða dvalar. En nóg um það.

Það sem er áhugavert við þá breytingu sem er lögð til í þessu frumvarpi, að 2. mgr. 36. gr. laganna verði felld brott, er það að 2. mgr. 36. gr. hefur þann tilgang að innleiða Dyflinnarreglugerðina. Dyflinnarreglugerðin er nefnilega þannig uppbyggð að hún kveður á um ákveðnar kríteríur sem ráða því hvaða ríki samstarfsins ber ábyrgð á meðferð umsóknar. Það er t.d. ef einstaklingurinn hefur fengið vegabréfsáritun útgefna af hálfu einhvers Evrópuríkis eða dvalarleyfi á síðustu tveimur árum og annað slíkt. Það er ákveðið fjölskyldusameiningarákvæði og svo ákvæði um að ef einstaklingur kemur ólöglega inn til ríkisins í Evrópu þá beri það ríki ábyrgð á meðferð umsóknarinnar. Það þarf hins vegar auðvitað að vera sannanlegt þannig að þar er gerð krafa um að einstaklingurinn hafi verið gripinn og tekin af honum fingraför.

Það er algengur misskilningur að fólk þurfi að hafa sótt um vernd í öðru Evrópuríki til að þessi ábyrgð verði til, til hennar stofnist. Í 1. mgr. 36. gr. er talað um þetta og það stendur hérna, með leyfi forseta:

„Umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skal tekin til efnismeðferðar nema:“ — og ég ætla að vinda mér beint í c-liðinn — „heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna,“ — þessi langa setning þýðir Dyflinnarreglugerðin — „um að taka við umsækjanda …“

Sem sagt: Ef það er heimilt að krefja annað ríki um að taka við umsækjanda með vísun í Dyflinnarreglugerðina þá ber íslenskum stjórnvöldum ekki skylda til að taka umsóknina til efnismeðferðar.

2. mgr. 36. gr.: Ég ætla ekki að þreyta hlustendur með því að lesa hana upp af því að hún var gerð að þvílíku orðskrípi með lögunum sem voru samþykkt í fyrra, eitthvert samansafn af Post-it miðum sem hafa orðið til í Útlendingastofnun um það hvers vegna fólk kemst fram hjá Dyflinnarreglugerðinni, það var reynt að stoppa í öll möguleg göt þar þannig að hún er undarlega orðuð og ég ætla því bara að lýsa henni. 2. mgr. kveður í rauninni á um undanþágur frá þessari heimild stjórnvalda til að senda fólk eitthvert annað. Það sem er áhugavert er að í 2. mgr. er talað um skyldu. Ég ætla rétt að lesa fyrsta hlutann af henni sem er enn þá sæmilega skiljanlegur, með leyfi forseta:

„Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr.“ — sem sagt að annað ríki beri ábyrgð á umsókninni — „skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.“

Ég ætla ljúka tilvitnuninni hér því að á eftir þessu kemur öll vitleysan sem var fléttuð þarna við með lögunum sem voru samþykkt í fyrra.

Tilgangur og notkun, beiting, þessa ákvæðis er vegna þess að í Dyflinnarreglugerðinni eru ákveðnir þættir sem verða til þess að Ísland getur borið ábyrgð á umsókninni eða að Íslandi sé heimilt að taka málið upp. Það er reyndar skýrt í Dyflinnarreglugerðinni að ríkjum er alltaf heimilt að taka mál til efnismeðferðar. Því var lengi haldið fram — og það tók mörg ár að leiðrétta þá lygi, ég ætla bara kalla það það því að það var oft meðvitað sem fólk fór með þessi ósannindi — að okkur bæri einhver skylda til að senda fólk úr landi ef það er heimilt samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni. Það er alls ekki þannig og er aldrei þannig. Samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni er okkur alltaf heimilt taka mál til efnismeðferðar ef okkur sýnist sem svo. 2. mgr. 36. gr. er lögfesting á því mikilvæga eðli Dyflinnarsamstarfsins.

Nú gengur Dyflinnarsamstarfið út á samstöðu og samvinnu, samstarf Evrópuríkja, eða alla vega að nafninu til, og orðið, með leyfi forseta, „solidarity“ kemur gríðarlega oft við sögu í umfjöllun um Dyflinnarreglugerðina og eitthvað í henni sjálfri. Ég a.m.k. og ég veit um fleiri lögfræðinga sem þekkja þessa löggjöf vel, við myndum vilja sjá betri rökstuðning fyrir því að Dyflinnarreglugerðin sé í rauninni réttilega innleidd hér á landi ef þetta ákvæði er numið brott. Það eina sem kemur fram í greinargerð og í vörn ráðuneytisins fyrir þessari breytingu er í rauninni að ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar gildi, sem sagt að ef Ísland ber ábyrgð á meðferð umsóknarinnar þá eigi 1. mgr. ekki við. En það eru þessi opnu og valkvæðu ákvæði í Dyflinnarreglugerðinni sem snúa einmitt að þessum þáttum sem eru nefndir í 2. mgr. 36. gr.; sérstök tengsl við landið eða sérstakar ástæður. Með því að fella þetta brott vil ég meina og óttast ég að það skapist ákveðin lagaleg óvissa um það að hvaða marki Dyflinnarreglugerðin er almennilega innleidd hér á landi.

Ég er ekki aðdáandi reglugerðarinnar vegna þess að hún hefur reynst illa. Það er gríðarlegur kostnaður sem fylgir því að vera að fljúga fólki fram og til baka um alla Evrópu, bara af því að ríki eru að slást um það hver ber ábyrgð á umsókninni, og það kemur alls ekki í veg fyrir það sem fólk vill kalla „asylum shopping“ vegna þess að það eina sem gerist ef einstaklingur kemur hingað til lands t.d. og sækir um vernd og eitthvert annað ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknarinnar, segjum Þýskaland vegna þess að viðkomandi fékk útgefna vegabréfsáritun þangað eða eitthvað slíkt, er að þá fer málsmeðferð í gang hér á landi sem er miklu þyngri í vöfum oft á tíðum, það veltur svolítið mikið á upprunaríki viðkomandi reyndar og aðstæðum, sem endar í rauninni með því að einstaklingurinn fær synjun um efnismeðferð og þar með synjun um leyfi til að dvelja á landinu. Það er hægt að kæra þá synjun og annað. Þannig að þar er komin ákvörðun, það er komin synjun, en það er ekkert sem kemur í veg fyrir að þessi einstaklingur freisti gæfunnar, þess vegna í öllum öðrum Evrópuríkjum. Hann fær bara mjög líklega sömu niðurstöðu; þú þarft að fara aftur til Þýskalands. Það eru aðildarríkin sjálf sem greiða fyrir flutninginn og mig hefur lengi langað til að vita hversu mikið þetta samstarf hefur kostað aðildarríkin í beinhörðum peningum í ofanálag við auðvitað málsmeðferðarkostnað og svo náttúrlega þjáningu fólks sem er bara að reyna að komast eitthvað þar sem það eigir einhverja von.

Auðvitað skýtur þetta líka skökku við vegna þess að í sumum ríkjum — á tímabili var það t.d. þannig að fólk sem kom frá Tsjetsjeníu fékk vernd, ég held að það hafi verið 90% verndarveiting einstaklinga frá Tsjetsjeníu í ákveðnu Evrópuríki og núll í öðru. Þá gefur augaleið að einstaklingurinn á gríðarlega mikla hagsmuni undir því hvort umsóknin sé afgreidd í einu ríki en ekki öðru. Hér komum við að svolítið skemmtilegum punkti sem er tugga sem mun örugglega líka taka mörg ár að leiðrétta og sem er búið að halda mikið á lofti í umræðu um þetta mál, að það sé einhvern veginn verið að samræma löggjöfina við það sem gengur og gerist í öðrum Evrópuríkjum, sem er auðvitað hin mesta þvæla vegna þess að löggjöfin er ekkert samræmd í Evrópuríkjum. En forsenda Dyflinnarsamstarfsins, eina leiðin til að láta það samstarf vera með einhverjum hætti réttlætanlegt og rökrétt væri ef framkvæmdin og löggjöfin væri samræmd í öllum Evrópuríkjum. Hún er það alls ekki, mjög fjarri lagi. Það er mjög mikill munur á milli ríkja og munurinn getur falist í hinu og þessu. Það eru ólíkar reglur um fjölskyldusameiningu. Það eru ólíkar reglur um þjónustu sem er veitt. Það eru ólíkar reglur um tímalengd dvalarleyfa og það eru ólík veitingarhlutföll eftir uppruna. Þannig að þær forsendur Dyflinnarreglugerðarinnar eru í rauninni ekki réttar, eða þær eru ekki fyrir hendi.

Ég er að falla á tíma, en í tengslum við þetta mál þá vildi ég nefna annars vegar þetta: Það er beinlínis vitleysa, það er beinlínis rangt að verið sé að samræma okkar löggjöf löggjöf annarra ríkja eins og gengur og gerist með þessu frumvarpi. Það er verið að taka upp ákveðnar reglur í ákveðnu einu Evrópulandi, Danmörku, reglur sem hafa reynst illa eins og ég hef bent á hér, og tilgangurinn (Forseti hringir.) ekkert útskýrður nánar. Það er ekkert farið nánar út í það af hverju við erum að taka þetta upp. Það á bara að samræma þetta til að samræma það. Það er ekki verið að samræma kerfið í heild sinni (Forseti hringir.) og t.d. eru reglurnar og kerfið á milli Norðurlandanna mjög ólíkt.

Hitt sem ég vildi benda á er þetta: Það leikur vafi á um (Forseti hringir.) að það að fjarlægja 2. mgr. 36. gr. standist í rauninni okkar alþjóðaskuldbindingar.