154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:08]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegur forseti. Ég óskaði eftir því við 2.umræðu þessa máls, í atkvæðagreiðslu, að málinu yrði vísað aftur til nefndar vegna þess að ég taldi að það væru alvarleg brot í þeim breytingum sem væri verið að gera í frumvarpinu, brot á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem hefur verið innleiddur hér í lög. Og af hverju er ég að láta þetta mig varða? Jú, virðulegi forseti, það er nefnilega þannig að í upphafi hvers nýs kjörtímabils þá eru 16 þingmenn, tveir frá hverjum flokki, útnefndir talsmenn barna á Alþingi og ég er einn þeirra þingmanna. Með mér, þegar þetta var gert í upphafi kjörtímabilsins, voru hv. þingmenn Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Bergþór Ólason, Anna Kolbrún Árnadóttir, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Jóhann Páll Jóhannsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Sigmar Guðmundsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Orri Páll Jóhannsson, sú næstsíðasta er víst orðin hæstvirt í dag.

Þegar þú gerist talsmaður barna á Alþingi þá skrifar þingmaður undir yfirlýsingu sem hefst svo, með leyfi forseta: „Ég heiti því að hafa barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi við störf mín sem þingmaður á Alþingi.“ Síðasta málsgrein þessarar yfirlýsingar hljóðar þannig: „Ég mun leitast við að meta og vekja athygli á áhrifum þeirra ákvarðana sem teknar eru á Alþingi á börn dagsins í dag sem og börn framtíðarinnar.“ Þannig hljómar þessi yfirlýsing og það er þess vegna, þegar ég sá að það væri verið að brjóta 10. gr. barnasáttmálans eða reyna að teygja hana til hægri og vinstri og upp og niður eins og reynt var í gaslýsingu ráðuneytisins, að ég tel mér skylt að ræða hér um það.

Við óskuðum eftir því í nefnd á milli 2. og 3. umræðu að umboðsmaður barna yrði fenginn til að koma með álitsgerð. Í lögum um umboðsmann barna, nr. 83/1994, sem tóku gildi 1. janúar 1995, stendur í 1. gr., með leyfi forseta:

„Embætti umboðsmanns barna hefur það hlutverk að bæta hag barna og standa vörð um hagsmuni, þarfir og réttindi þeirra, m.a. samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og fleiri alþjóðasamningum, svo sem nánar greinir í lögum þessum.“

Í 3. gr. stendur, með leyfi forseta:

„Umboðsmaður barna skal vinna að því að stjórnvöld, einstaklingar, félög og önnur samtök einstaklinga og fyrirsvarsmenn lögpersóna taki fullt tillit til réttinda, þarfa og hagsmuna barna. Í starfi sínu skal umboðsmaður barna setja fram ábendingar og tillögur um úrbætur sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins. […]

Umboðsmaður barna skal einkum: […]

b. fylgjast með þróun og túlkun samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins,

c. koma á framfæri tillögum um úrbætur á réttarreglum og fyrirmælum stjórnvalda er varða börn sérstaklega,

d. stuðla að því að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sé virtur sem og aðrir alþjóðasamningar sem varða réttindi og velferð barna og fullgiltir hafa verið af Íslands hálfu og enn fremur benda á að samningar um þetta efni verði fullgiltir“.

Hæstv. forseti. Það er nákvæmlega hlutverk umboðsmanns barna að tryggja það að stjórnvöld fari eftir þessum samningi. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom að mér eftir að ég fór í andsvar áðan, með athugasemdir um að þetta færi nú bara undir forsætisráðuneytið en ekki Alþingi og því þyrfti nú varla að hlusta mikið á það sem þaðan kæmi. En jú, þetta er nefnilega sett undir forsætisráðuneytið til þess að tryggja að öll ráðuneyti séu að fylgja þessum samningi.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins er ekki bara einhver alþjóðlegur samningur sem við höfum undirritað heldur höfum við tekið þennan barnasáttmála og gert hann að lögum. Í lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, nr. 19/2013, stendur í 2. gr., með leyfi forseta: „Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins hefur lagagildi á Íslandi.“ Það er ekkert hér sem segir eitthvað um takmörkun á atriðum í þessum samningi, það stendur einfaldlega að hann hafi lagagildi. Og þegar við segjum að hann hafi lagagildi þá nær hann yfir öll börn. Þetta er ekki bara samningur um börn á Íslandi eða lög um börn á Íslandi heldur lög um réttindi barna almennt.

Í inngangi samnings Sameinuðu þjóðanna segir að ríki sem eru aðilar að þessum samningi viðurkenna að barn eigi að alast upp innan fjölskyldu. Á þessu er nánar tekið í öðrum greinum samningsins en þó sérstaklega í 10. gr. samningsins þar sem stendur, með leyfi forseta:

„Í samræmi við skuldbindingar sínar samkvæmt 1. tölul. 9. gr. skulu aðildarríki með jákvæðu hugarfari, mannúðlega og með skjótum hætti afgreiða beiðni barns eða foreldris þess um að koma til eða fara frá aðildarríki vegna endurfunda fjölskyldu.“

Þarna stendur ekkert um það, virðulegur forseti, um að þetta eigi ekki við um börn á flótta eða foreldra barna á flótta.

Í 18. gr. samnings stendur einnig, með leyfi forseta:

„Aðildarríki skulu gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að sú meginregla sé virt að foreldrar beri sameiginlega ábyrgð á að ala upp barn og koma því til þroska.“

Já, virðulegi forseti, það er einfaldlega þannig að það er eitt af grundvallaratriðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna að þau hafa rétt til þess að vera hjá foreldrum sínum. Þegar við erum vísvitandi, þrátt fyrir endalausar ábendingar bæði umboðsmanns barna og okkar þingmanna sem hér erum, þegar vísvitandi er verið að brjóta ákvæði þessa samnings með því að takmarka það að börn geti komist til foreldra sinna eins hratt og auðið er, þá erum við hér á þingi að ganga ekki bara gegn sannfæringu okkar heldur gegn lögum.

Ég veit ekki hvað þarf að gera til þess að fá hv. þingmenn til þess að líta í eigin barm og hugsa um það að ef börn þeirra væru aðskilin, ef við hefðum þurft að flýja Ísland, t.d. vegna þess að hér væri komin ísöld eða eitthvað, hvort þeir myndu nú ekki vilja fá barnið sitt til sín sem allra fyrst. Þegar reynt er að benda á þetta þá er sífellt vísað til Danmerkur, sennilega af einhverri nýlenduhyggju. En það gleymist að benda á það að Danmörk er land sem hefur ekki lögfest barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og er þar af leiðandi ekki dæmi sem hægt er að taka um það hvort verið sé að brjóta þessar reglur eða ekki.

Virðulegi forseti. Það er virkilega sorglegt að í þeirri stefnu sinni að reyna að gera sem mest til þess að fólk á flótta komi ekki hingað þá skuli þau örfáu börn — þetta eru nefnilega ekkert mörg börn, þetta eru ekki hundruð eða þúsundir barna sem myndu sameinast fjölskyldum hér heldur einhverjir tugir — vera í staðinn látin líða fyrir illmennsku stjórnarmeirihlutans. Já, þetta er ekkert annað en illmennska. Það er nefnilega þess vegna sem þessar greinar komu inn í þennan barnasáttmála. Það var ekki sagt: Já, við getum passað að börn megi ekki vera hjá foreldrum sínum af því að annars hefur Ísland eitthvað aðdráttarafl? Nei, fólk er ekki að hugsa þannig, hv. þingmenn. En þeir sem sömdu þennan barnasáttmála skildu vel hvaða áhrif það hefur á börn þegar þau fá ekki að alast upp með foreldrum sínum eða bara öðru foreldri.

Ég skora á hv. þingmenn og sérstaklega þá hv. þingmenn sem eru á þessu löggjafarþingi talsmenn barna, að koma hér og sýna það í verki að þau treysta og trúa því að réttindi barna eigi að vera virt. En það var greinilegt, alla vega hjá sumum sem hafa verið talsmenn barna fyrr, áður en þetta kjörtímabil byrjaði, að þau hafa alveg gleymt því hvað það er sem stendur í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Hér eru fyrrum talsmenn barna sem standa fyrir því að halda börnum frá foreldrum sínum og blikna ekki við það að ganga á réttindi þeirra og svíkja þessa alþjóðasamninga og ekki bara svíkja alþjóðasamninga heldur svíkja þau lög sem við höfum sett hér á landi um að barnasáttmálinn gildi hér og hafi fullt lagagildi.

Ég get sagt það hér, virðulegi forseti, að þegar þetta ákvæði verður samþykkt þá skammast ég mín fyrir að vera á Alþingi.