útlendingar.
Frú forseti. Við ræðum hér enn aðra breytinguna á útlendingalögum. Breytingin er lögð til af hæstv. dómsmálaráðherra og meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur gert nefndarálit um téð frumvarp þar sem tekið er undir þessi sjónarmið. Þetta frumvarp, eins og önnur frumvörp sem hafa verið lögð fram um breytingu á útlendingalögum á þessu kjörtímabili, er lagt fram með nákvæmlega sömu rökum, að þetta muni auka skilvirkni, að þetta muni fækka umsóknum, að þetta muni minnka álagið sem umsækjendur um alþjóðlega vernd setja á kerfið okkar.
Virðulegi forseti. Þetta er, alveg eins og frumvarpið sem var þvingað í gegn síðasta vor, frekar vanhugsað frumvarp, verð ég að segja. Og þá ætla ég bara að byrja á efnislegum hlutum. Ég nefni það sem dæmi að fella á brott 2. mgr. 36. gr. í útlendingalögum, það er gert með vísan til þess að umsóknum muni fækka og álagið minnka, eins og ég sagði. En það að fella niður heimildina til að taka mál til efnismeðferðar er ekki að fara að fækka umsóknum, virðulegi forseti. Það kemur ekki í veg fyrir að fólk sæki um alþjóðlega vernd á Íslandi. Það er ekki verið að tryggja skilvirkni. Þetta mun bara hafa í för með sér aukið álag á starfsfólk Útlendingastofnunar sem er nú þegar undir rosalega mikla álagi, það er mjög mikið að gera hjá þeim. Ég held að það sé svolítið erfitt að starfa í takt við vilja og breytingar þeirra hæstv. dómsmálaráðherra sem hafa verið í þessu embætti á þessu kjörtímabili, enda mjög metnaðarfullt markmið með öðruvísi tilgangi. Tilgangurinn er sem sagt að auka skilvirkni í útlendingamálum, minnka ríkisútgjöld, fækka umsóknum, sem ég veit ekki alveg hvernig á að gera. Þetta skilar sér bara í meiri óskilvirkni og í meira skipulagsleysi. Þetta setur meira álag á kerfið sjálft. Til dæmis sú breyting að fólk missir atvinnuleyfið, þá fer það væntanlega aftur í fulla þjónustu á kostnað skattgreiðenda. Það að fella niður atvinnuleyfið og láta fólk sækja aftur í velferðarþjónustuna, félagslega aðstoð, á kostnað skattgreiðenda er gert til að hvetja það til að fara. Þetta er svo mikil mótsögn að ég er einhvern veginn ekki alveg að átta mig á þessu. Er þetta hluti af einhverri stærri stefnu til að neyða útlendinga til að leggjast á kerfið til að sýna að þau hafi haft rétt fyrir sér?
Þessi ríkisstjórn hefur talað um meiri inngildingu útlendinga og þess vegna er þessi flóttamannastraumur líka svo ótrúlega íþyngjandi fyrir skattgreiðendur og ríkissjóð og hvað eina annað sem þau hafa tekið fram. En þær afleiðingar sem þetta frumvarp hefur í för með sér fara algerlega í berhögg við það sem þessi ríkisstjórn hefur viljað meina að hún vilji gera allt þetta kjörtímabil. Þetta er bara að fara að setja meira álag á ríkissjóð. Þetta er bara að fara að auka útgjöld ríkisins. Mér þykir það bara rosalega leiðinlegt að þetta sé leiðin sem er verið að fara í stað þess að tryggja viðeigandi stjórnsýslumeðferð þessara mála. Samkvæmt þessu frumvarpi er t.d. einn nefndarmaður í kærunefnd útlendingamála sem má úrskurða í næstum því öllum málum, virðulegi forseti. Nú veit ég ekki um slíka heimild í öðrum úrskurðarnefndum á æðra stjórnsýslustigi. Ég er bara að velta því fyrir mér: Hvaðan kemur þetta? Af hverju má þetta þegar kemur að málsmeðferð útlendinga? Af hverju skiptir málsmeðferð stjórnvalda, grundvallarreglur um málsmeðferð stjórnvalda, ekki máli þegar kemur að málaflokki útlendinga en hún skiptir máli þegar kemur að málaflokki annarra?
Ég er eiginlega enn að átta mig á tilgangi þessa frumvarps. Ég held að það sé verið að henda út fullt af einhverjum málum. Það er frjór jarðvegur fyrir því að kenna útlendingum um ákveðna stöðu sem hefur komið upp í samfélaginu vegna þess að þessi ríkisstjórn hefur verið að reka ríkissjóð í halla meira og minna í ár, og verður það alla vega næstu fjögur árin, og þau vilja geta keyrt á einhverju í næstu kosningum. Þessi ríkisstjórn hefur verið með allt niðrum sig þetta kjörtímabil. Ég held að þau hafi ekki náð einu stóru máli í gegn. Ég held að ég geti talið upp þau mál sem komu fram í stjórnarsáttmála Framsóknarflokksins, Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins frá 2021 og náðu í gegn, ég held ég geti talið upp þau mál sem þau hafa náð í gegn sem þau tóku fram í stjórnarsáttmála að þau vildu ná í gegn. Það hefur ekkert gerst og þau verða að keyra á einhverju í næstu kosningum. Hvað ætla þau að segja? Á hverju ætla þau að reka kosningabaráttu sína í næstu kosningum? Já, við náðum ekki að gera neitt sem við sögðumst ætla að gera í stjórnarsáttmála út af því að við mynduðum ríkisstjórn með flokki sem við eigum ekki að mynda ríkisstjórn með og í stað þess að slíta samstarfinu héldum við því áfram.
Ég held að ég sé aðeins að átta mig á því sjónarmiði sem liggur þarna að baki. Ég held að ég sé svona smá að skilja af hverju þessi málaflokkur skiptir þau svo ótrúlega miklu máli. Ég skil þetta. Þessi málaflokkur skiptir mig líka miklu máli. Þetta varðar grundvallarprinsipp Pírata, borgararéttindi, gagnsæja stjórnsýslu og réttláta málsmeðferð. Þetta er algjörlega á skjön við það og ég held að þessi ríkisstjórn — með fullri virðingu fyrir hæstv. dómsmálaráðherra, enda líkar mér bara rosalega vel við hana — sé aðeins að reiða sig á að fólk sé ekki læst, að fólk nenni ekki að lesa frumvörpin sem þau eru að leggja fram, það nenni ekki að velta fyrir sér afleiðingunum og hvernig þessum lagabreytingum verður beitt í framkvæmd. Þetta er mjög vanhugsað frumvarp og þegar næsta ríkisstjórn tekur við, sem ég held að Sjálfstæðisflokkurinn sitji ekki í, þá verður ríkissjóður í algjöru hakki og þá þarf Sjálfstæðisflokkurinn að taka ábyrgð á stöðunni sem komin er upp. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn verður ríkissjóður bara í góðum málum og allt sem er slæmt, það er bara útlendingum að kenna. Þegar ríkisstjórnin er ekki með Sjálfstæðisflokkinn í fararbroddi — ég veit ekki hver staðan verður þá, enda er ég of ung til að hafa fylgst með stjórnmálum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í ríkisstjórn. En það gerist kannski bráðlega. Hver veit?
Virðulegi forseti. Þetta nefndarálit 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar, sem hv. þm. Halldóra Mogensen er flutningsmaður á, og ég er að taka hennar sæti, leggur til að 6. og 7. gr. þessa frumvarps falli á brott. Ég tek heils hugar undir þá breytingartillögu enda finnst mér það rosalega íþyngjandi áhrif sem munu koma fram þegar frumvarpinu hefur verið þröngvað í gegn, þegar við förum að sjá afleiðingar þess að þessi lög hafa tekið gildi og þeim er beitt í framkvæmd. Fólk mun þá láta eins og það komi því á óvart að lögin séu ekki að virka eins og skyldi. Við sáum það með rétt útlendinga til að sækja sér félagslega aðstoð hjá sveitarfélögum. Þetta var 6. gr. frumvarps um breytingu á útlendingalögum, sem var samþykkt í mars 2023, ég man að þetta var 6. gr. Við vöruðum við þessu héðan úr pontu. Við Píratar komum upp, hver á fætur öðrum, og vöruðum við því hvernig þessari lagabreytingu yrði beitt í framkvæmd. Ég man meira að segja að í atkvæðaskýringu í 2. umræðu kom hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra upp og réttlætti þetta og sagði: Nei, þetta mun virka svona. Þremur mánuðum síðar segir hann svo í fréttum: Já, við þurfum að efna til samtals við sveitarfélögin. Af því að það sem átti ekki að gerast gerðist.
Já, virðulegi forseti, við vöruðum við. Ég held að það sé bara búið að afmennskuvæða útlendinga svo ótrúlega mikið að jafnvel þó að hlutir fari úrskeiðis, þó að lögunum sé ekki beitt á þann hátt sem á að gera, með tilheyrandi afleiðingum á líf þess fólks sem kemur hingað og býst við réttlátri málsmeðferð, og það hefur íþyngjandi áhrif, þá skiptir það einhvern veginn ekki það miklu máli. Þetta eru auðvitað bara útlendingar og þeim verður vísað á brott, þau verða ekkert lengur hér. En við búum í réttarríki og í réttarríki gilda ákveðnar reglur um málsmeðferð stjórnvalda og ég þarf ekki endilega að reifa þær hér, enda er ekki það mikill tími eftir af ræðunni minni. En þessar málsmeðferðarreglur, sem gilda um málsmeðferð stjórnvalda gagnvart stjórnvaldsákvörðunum í málefnum borgara, sem varða réttindi og skyldur þeirra, gilda um alla. Þær gilda um alla einstaklinga sem leita úrlausnar mála sinna hjá stjórnvöldum. Hvers vegna er verið að afnema þann rétt fyrir einhvern tiltekinn hóp? Ég ætla ekki að ganga svo langt að kalla þetta mismunun en það er ekki langt í það.
Virðulegur forseti. Ég er mjög efins, ég er svo sem búin að taka það fram, með 6. og 7. gr. frumvarpsins. Ég held að það séu helstu ákvæðin sem myndu hafa í för með sér mjög þungar og mjög neikvæðar afleiðingar fyrir þau sem hingað koma og meira að segja fyrir börnin sem hafa fengið vernd hér. Þetta er ekki að fara að hvetja þau til inngildingar. Þetta er ekki að fara að hvetja þau til að gerast virkir þátttakendur í íslensku samfélagi. Þetta er svolítið fyndið. Stjórnvöld, þessi ríkisstjórn, vilja að fólk byrji að tala íslensku og vilja láta eins og þau séu að gera allt sem þau geta til að útlendingar nái inngildingu í samfélagið og byrji að tala íslensku. Síðan er verið að leggja til einhverjar aðgerðir, sem munu ná í gegn, sem ganga þvert á það markmið og koma bara með beinum hætti í veg fyrir að útlendingar öðlist inngildingu í samfélagið á Íslandi. Síðan þegar útlendingar læra íslensku og tala bjagaða íslensku, en eru samt að reyna, þá eru þeir að eyðileggja íslenskuna okkar. Og þegar útlendingar læra ekki íslensku af því að komið er í veg fyrir það með því að meina þeim um atvinnuleyfi þá er það ekki inngilding í íslenskt samfélag.
Hvað viljið þið? Eruð þið að leggja til einhverja lausn á þessu? Eruð þið að leggja til einhverja lausn á því sem varðar þá útlendinga sem koma hingað í verndarskyni, ekki EES-borgarar heldur útlendingar sem koma hingað og leita sér verndar og vilja verða hluti af íslensku samfélagi? Eruð þið með einhverja lausn? Eruð þið með einhverjar tillögur um hvernig þetta fólk á að gerast virkir þátttakendur í íslensku samfélagi, virkir þátttakendur í íslensku atvinnulífi? Mig langar í svar við þessu af því að það eru til svo mörg dæmi um svo marga útlendinga sem hafa komið hingað í verndarskyni og eru síðan bara að standa sig rosalega vel og eru bara eins íslenskir og hægt er, virðulegi forseti.
Mér þykir það rosalega miður að þessi öfgahyggja sem útlendingamálin virðast vera að þróast út í sé líka farin að ná til Íslands. Við erum ekki fáfróð þjóð. Við erum það ekki. Við erum eyja, pínulítil eyja, einhvers staðar lengst úti í Atlantshafinu sem er bara frekar einangruð. Ég bara skil ekki af hverju við erum að líta til Bandaríkjanna og þeirrar þróunar sem er að eiga sér stað á meginlandinu í stað þess að mynda okkar eigin sjálfstæðu skoðanir; ekki bara að fylgja þeim eftir í blindni út af því að þetta er einhver bylgja sem er að ganga yfir núna og við viljum endilega verða hluti af.