útlendingar.
Herra forseti. Til gamans vil ég geta þess að þetta tíst sem við heyrum hér úr hliðarsal er ekkert á við trommusólóin og sönginn sem við megum oft og tíðum þola frá gestum okkar fyrir utan þinghúsið. En hvað um það.
Við ræðum hér um hið svokallaða útlendingafrumvarp. Við í Flokki fólksins munum styðja þetta mál og höfum í rauninni kallað eftir því lengi að einhverju skikki yrði komið á í málaflokknum. Ég var hér í óundirbúnum fyrirspurnum við hæstv. forsætisráðherra í morgun til þess að athuga hvort a.m.k. Sjálfstæðisflokkurinn tæki ekki fegins hendi þeirri breytingartillögu sem Flokkur fólksins er að leggja fram við þetta útlendingafrumvarp. Við byggjum það svona frekar á því sem fram kemur í orðræðunni í samfélaginu heilt yfir og svo var hæstv. dómsmálaráðherra í gærkvöldi einmitt að tala um mikilvægi þess að við gætum brottvísað þeim sem ekki væru íslenskir ríkisborgarar ef þeir hefðu verið að brjóta af sér hér á landi.
Í útlendingalögunum, nánar tiltekið 99. gr. þeirra, er heimild til að vísa brott útlendingum með dvalarleyfi ef þeir hafa gerst brotlegir við íslensk lög. Þar segir, með leyfi forseta:
„Heimilt er að vísa útlendingi úr landi sem hefur dvalarleyfi ef:
a. hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laga þessara eða af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögum þessum,
b. hann hefur á síðustu fimm árum afplánað refsingu í útlöndum eða verið dæmdur þar til refsingar fyrir háttsemi sem að íslenskum lögum getur varðað fangelsi lengur en eitt ár; samsvarandi gildir um sérstakar ráðstafanir sem ákvarðaðar eru vegna slíkrar refsiverðrar háttsemi,
c. hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar eða til að sæta öryggisráðstöfunum fyrir háttsemi sem getur varðað fangelsi lengur en eitt ár eða oftar en einu sinni verið dæmdur til fangelsisrefsingar á síðustu þremur árum,
d. það er nauðsynlegt vegna öryggis ríkisins eða almannahagsmuna.“
En þessi grein sem ég er hér að tala um dugar ekki til að vísa brott hælisleitendum sem hafa fengið hér stöðu flóttamanns vegna þess að í flestum tilvikum þá girðir 1. mgr. 42. gr. laga fyrir brottvísun þeirra. Sú grein fjallar um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Því leggjum við til að við 42. gr. bætist málsgrein sem taki fram að bann við brottvísun skv. 1. mgr. þeirrar lagagreinar gildi ekki um þá sem hafa framið alvarleg brot.
Ég ætla hér að lesa upp breytingartillögu Flokks fólksins við útlendingafrumvarpið, með leyfi forseta, breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd). Með mér á þessari breytingartillögu er gjörvallur þingflokkur Flokks fólksins, þau Elín Íris Fanndal, Eyjólfur Ármannsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jakob Frímann Magnússon og Tómas A. Tómasson.
„Á eftir 5. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við 42. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Útlendingur nýtur ekki verndar skv. 1. mgr. ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins eða hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu. Útlendingur nýtur ekki heldur verndarinnar þegar svo háttar sem um ræðir í F-lið 1. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.“
Í greinargerð segir að lagt sé til að við 42. gr. laga um útlendinga bætist ný málsgrein samhljóða 3. mgr. 45. gr. eldri laga um útlendinga, nr. 96/2002. Í 2. mgr. 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna er að finna sambærilega heimild um að flóttamaður njóti ekki verndar gegn brottvísunum í tilteknum tilvikum. Sambærileg ákvæði er að finna í útlendingalögum nágrannaríkjanna, sbr. 31. gr. dönsku útlendingalaganna. Lagt er til að í stað þess að fjalla um mjög alvarlegt afbrot, líkt og gert var í tíð laga nr. 96/2002, verði vísað til alvarlegs afbrots þar sem ekki tíðkast að vísa til mjög alvarlegra afbrota í íslensku réttarfari.
Við erum í raun að sjá breytingu á samfélaginu okkar, mjög hraða breytingu. Mörgum hverjum finnst frábært að við skulum vera orðið fjölmenningarsamfélag þar sem mætast mismunandi samfélög og er það náttúrlega eins fallegt og þegar við Íslendingar erum að sækja önnur lönd heim og erum að fara og skoða menjar í öðrum löndum. Við erum samstíga þar með fólki alls staðar að úr heiminum og það virðist nú í flestum tilvikum vera í sátt og samlyndi. Hér hefur okkur fjölgað mjög hratt á mjög skömmum tíma og við í Flokki fólksins höfum gjarnan sagt að við séum búin að missa tök á málaflokknum sem lýtur að alþjóðlegri vernd eða hælisleitendum eins og við höfum kallað þá sem óska hér eftir vernd. Við höfum gjarnan sagt að það sé löngu tímabært að við samræmum okkar regluverk regluverki Norðurlandanna. Við erum ekki að tala um alla Evrópu, við erum að tala um regluverk Norðurlandanna. Þröskuldurinn hér inn til okkar verður að vera a.m.k. sambærilega hár og hann er í löndunum í kringum okkar. Það þýðir ekki að ætla að hafa hann mun lægri. Við vitum alveg hvað verður um vatnið sem rennur af stað, það stoppar á ákveðnum hindrunum en ef það er búið að taka þær hindranir úr vegi þá flæðir það einfaldlega áfram. Það er nákvæmlega það sem við höfum verið að horfast í augu við hér upp á síðkastið. Beinn kostnaður af málaflokknum er farinn að telja hátt í 25 milljarða kr.
Það hafa orðið breytingar á stöðunni við það t.d. að einstaklingum frá Venesúela er ekki lengur tekið sem sjálfsögðum hlut eins og var þegar þeir fengu sjálfkrafa alþjóðlega vernd hér. Samhliða því hefur umsóknum fækkað. En það breytir ekki þeirri staðreynd að við erum í raun í vanda alls staðar með innviði okkar, hvort heldur við tölum um heilbrigðismál, menntamál eða hvaða mál sem er. Getum við sagt að það sé hælisleitendum að kenna, eins og margir segja? Nei, það er ekki hælisleitendum að kenna, það er ofvexti að kenna. Það er því að kenna að við höfum ekki undirbúið jarðveginn eins og við ættum að gera með tilliti til þess að geta tekið á móti þeim fjölda fólks sem margir kalla hér eftir.
Við erum að sjá hér hatursglæpi eða réttara sagt heiðursglæpi, þeir eru farnir að líta dagsins ljós hér. Ég var með lögreglunni á ráðstefnu á Húsavík á dögunum, fyrir tæpum þremur vikum, þar sem kom fram að þrátt fyrir að aukið fjármagn hefði verið sett í lögregluna þá breyti það ekki þeirri staðreynd að verkefni hennar hafa gjörbreyst einmitt á þessum tíma með allri þessari breytingu á samsetningu samfélagsins. Hver þekkir ekki Wok On dæmið og dæmið þar sem heil fjölskylda meira og minna er ítrekað í gæsluvarðhaldi vegna mansals og peningaþvættis og skipulagðrar glæpastarfsemi í gegnum sinn starfa? Nú er ég að lesa að það eru hér 17 staðir sem hafa verið með vændissölu sem lögreglan er núna að rannsaka. Hér er endalaust verið að tala um og ítrekað að grunur leiki á að um mansal sé að ræða, grunur leiki á skipulagðri glæpastarfsemi, grunur leiki á þessu og hinu. Við verðum að átta okkur á því að það er ekki nóg að vilja vera góð og bjarga heiminum. Við þurfum líka að geta það. Það er hreinlega galið að ætla að tengja það við manngæsku og að þeir sem vilji koma hér með eitthvert skipulag á málaflokkinn séu bara vondir, haldnir mannvonsku. Það er einfaldlega galinn málflutningur. Það er ekki flóknara en það.
Þessi breytingartillaga sem við erum að koma hér með felur í sér að við viljum brottvísa skilyrðislaust þeim útlendingum og þeim hælisleitendum sem ekki eru komnir með íslenskan ríkisborgararétt en gerast stórkostlega brotlegir við íslenska löggjöf og eru dæmdir til refsingar og annað slíkt. Þeir eiga ekkert erindi hér. Við þurfum ekki og eigum ekki, íslenskir skattgreiðendur, að byggja fleiri og fleiri fangelsi bara til þess að geta tekið á móti fleiri og fleiri erlendum glæpamönnum. Það liggur algjörlega á borðinu þannig að við segjum enn og aftur: Við þurfum að koma eðlilegu skikki á málaflokkinn.
Ég veit það bara að þessi tillaga er til þess að aðstoða t.d. þetta útþynnta útlendingafrumvarp. Við höfum náttúrlega áður komið með breytingartillögur við það en þeim hefur verið hafnað. Þetta er til þess að styðja a.m.k. við það sem maður veit að er verið að kalla á úti í samfélaginu. Af hverju eigum við að halda uppi erlendum glæpamönnum í okkar fangelsum eða leyfa þeim jafnvel að halda uppteknum hætti? Við erum búin að sjá það líka, bæði hefur verið skrifað um það í fjölmiðlum og við heyrum það frá starfsstéttinni sjálfri, leigubílstjórastarfsstéttinni, að það urðu stórkostleg mistök þegar fyrrverandi innviðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, þrumaði hér í gegnum Alþingi breytingum á leigubílalögunum. Það er hreinlega búin að vera hálfgerð vargöld á Keflavíkurflugvelli þar sem einstaklingar hafa víst verið bæði leyfislausir og allslausir hvað það varðar, þeir eru ósvífnir, þeir rukka jafnvel tífalt gjald og þetta er bæði fest á filmu og um þetta hefur verið skrifað, það er talað um þetta í fjölmiðlum, lögreglan er meðvituð um þetta. Lögreglan er ítrekað að vakta þetta svæði. Það er sem sagt verið að rústa því öryggi sem við höfum haft hér, bæði ferðamenn og allir borgararnir, af því að hér hafa verið reknar leigubílastöðvar með sóma þar sem við höfum mátt njóta öryggis. Nú er svo komið að mér skilst að jafnvel einstaklingar gangi hér í gegn og geti jafnvel tekið leigubílstjóraprófið með símanum sínum, svindlað bara prófinu í gegn og það er meðvitaður vilji til að hleypa því í gegn. Það er bara meðvitaður vilji. En nú liggja á borði lögreglu allnokkur mál þar sem um meinta nauðgun er að ræða hjá erlendum leigubílstjórum sem hafa komist inn í kerfið náttúrlega á þessum forsendum. með nýjum breytingum á lögum um leigubíla, og það eru a.m.k. þrjú tilvik sem ég veit um núna þar sem er grunur um nauðgun. Leigubílstjóri tekur einstakling upp í bílinn, venjulega kvenkyns einstakling í yngri kantinum, og fer með hana eitthvert afsíðis og kemur þar fram vilja sínum við við hana.
Ég veit ekki með ykkur en þetta er þróun sem við í Flokki fólksins fordæmum með öllu og okkur ber skylda til þess að reyna að girða fyrir eins og kostur er. Ef við sjáum að eitthvað er ekki að virka þá eigum við að stíga inn í það, grípa inn í og reyna að laga það, leiðrétta það og færa til betri vegar. Það er nákvæmlega það sem við segjum í Flokki fólksins: Fólkið fyrst, svo allt hitt og áfram veginn.