útlendingar.
Forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir ræðu sína. Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. (IngS: … bara eina mínútu.) Ég hef bara eina mínútu, það er alveg rétt. Við erum sammála um megintilgang kerfisins. Ef við sjáum að eitthvað er ekki að virka þá eigum við að grípa inn í, þá eigum við að stíga inn í og girða fyrir það. Við eigum að prófa eitthvað nýtt. Því langar mig að spyrja hv. þingmann, sérstaklega í ljósi ræðu hennar í gær á eldhúsdeginum þar sem hún talaði um ríkisútgjöld og þann himinháa kostnað sem hefði komið til í stjórnartíð þessarar ríkisstjórnar: Telur hún að í núverandi kerfi, sem á að tryggja skilvirka meðferð mála útlendinga og með þessum breytingum, sé þetta að fara að minnka útgjöld ríkisins í þessum málaflokki?