útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég tel það, a.m.k. verða ekki þessir 25 milljarðar undir sem fara í beinan kostnað núna og þá erum við ekki að tala um óbeinan kostnað sem verður þess valdandi að mig langar að snúa spurningunni við, þótt ég sé náttúrlega að svara andsvörum frá hv. þingmanni. Ég heyrði hana í hennar góðu ræðu áðan tala um að það yrði aukinn kostnaður við þessar breytingar og þá langar mig til að fá pínulítið rökstuðning um það. Þó að ég sé náttúrlega ekki hreinn og klár stærðfræðingur þá er ég bara, myndi ég segja, þokkaleg í að leggja saman tvo og tvo þannig að mér þætti ofsalega vænt um að fá að vita hvernig í ósköpunum hv. þingmaður getur fengið það út að það muni vera okkur dýrara að koma útlendingalöggjöfinni í gegn og girða fyrir þennan fjölda umsókna heldur en ekki. Ég bara skil það ekki. En ég tek undir annað sem hv. þingmaður er að segja.