154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:55]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef stuttan tíma til að svara spurningu hv. þingmanns sem hún spurði mig í andsvari. Hvernig í ósköpunum mun það kosta ríkið meira að ná þessum útlendingalögum í gegn? Meðferð þessa frumvarps er ekki að fara að kosta ríkið neitt en þegar lögin ganga í gegn og taka gildi þá er þetta bara aukakostnaður fyrir ríkið, t.d. tillaga hæstv. dómsmálaráðherra um að atvinnuleyfi sé tekið af þeim sem hafa dvalarleyfi. Í núverandi kerfi þá er atvinnuleyfi afnumið þegar umsækjandi hefur fengið endanlega synjun. Þarna er verið að afnema atvinnuleyfi þessa umsækjanda á fyrri stigum málsins þannig að þangað til að hann fær endanlega synjun er hann kominn aftur á kerfið á kostnað skattgreiðenda. Þetta er náttúrlega — ég hef bara eina mínútu en ég væri endilega til í að taka samtal við hv. þingmann um þetta.