154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:56]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Í fyrsta lagi, ef ég skil hv. þingmann rétt, þá er hún að segja að atvinnuleyfi falli niður þegar einstaklingi hefur verið brottvísað. Það er náttúrlega bara eðlilegt því að ef einstaklingi hefur verið brottvísað þá eru lögin skýr, hann hefur einfaldlega ekki heimild til að vera lengur í landinu. Ég hins vegar átta mig ekki alveg á því hvað hv. þingmaður er að segja, ef ég segi nákvæmlega eins og er. Fyrir utan það að ég myndi telja að það yrði allmikil minnkun á kostnaði ef hér myndi stórlega fækka umsóknum um alþjóðlega vernd. Það liggur náttúrlega alfarið á borðinu og fyrir utan það að við höfum ekki einu sinni bolmagn til að taka á móti fólkinu. Við höfum ekki húsnæði, við höfum ekki skólapláss, við höfum ekki neitt fyrir þetta fólk, ekki nema bara að láta það fara í hokur með hinum sem virkilega eru að hokra í þessu blessaða landi okkar. Þannig að já, ég vil taka samtalið við hv. þingmann.