154. löggjafarþing — 122. fundur,  13. júní 2024.

útlendingar.

722. mál
[16:58]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þessi breytingartillaga bætir því við sem áður var fyrir hendi, sem var áður 99. gr. í lögum um útlendinga. Hún bætir því einfaldlega við að það liggur algerlega ljóst fyrir að þrátt fyrir að hælisleitandi hafi fengið hér vernd þá megum við vísa honum út. Í löggjöfinni sem er gildandi núna þá höfum við ekki heimild til að vísa þeim einstaklingum út, sbr. 3. mgr. 45. gr. eldri útlendingalaga. Það sem við erum að reyna að gera hérna er að reyna að tryggja það og síðan er heldur ekki tekið fram í löggjöfinni núna það sem við erum að tala um, stórkostlegt brot eða því um líkt. Það er ekki ítrekað að það sé um alvarlegt brot að ræða í íslenskri löggjöf eins og ég geri ráð fyrir að verði sérstaklega tilgreint með þessari breytingartillögu sem við í Flokki fólksins erum að koma með núna.