útlendingar.
Forseti. Ég er að reyna að vera nákvæmur í þessu. Það stendur einmitt í 99. gr., sem er um brottvísun útlendings sem hefur dvalarleyfi, í c-lið; „hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar eða til að sæta öryggisráðstöfunum fyrir háttsemi sem getur varðað fangelsi lengur en eitt ár eða oftar en einu sinni verið dæmdur til fangelsisrefsingar á síðustu þremur árum“. Mjög skýrt í lögunum hvað þarf til í rauninni til þess að brottrekstur eigi sér stað ef viðkomandi er með dvalarleyfi. Ég sé ekki í breytingartillögu hv. þingmanns og Flokks fólksins að það sé hægt að lesa einhverja nákvæmni úr því eða hverju hún bætir við þessa mjög skýru skilgreiningu á brotum sem eru það alvarleg að þau varða fangelsisvist í eitt ár eða lengur. Er hv. þingmaður að leggja til að brotin séu síður alvarleg, hálft ár eða þrír mánuðir, eða hvað er það sem bætist við í breytingartillögu hv. þingmanns?